Pósthússtræti 17 - Fastanúmer 200-2712
Skólabrú - Einstök eign til sölu eða leigu í hjarta miðbæjar Reykjavíkur
Undanfarin ár hafa verið reknir tveir veitingastaðir í húsinu við gott orðspor með góðum veislusal á efstu hæð.
Húsið er þriggja hæða og með tvennum svölum sem snúa að Austurvelli og er í mjög góðu ásigkomulagi.
Neðri hæð er 160m2, miðhæðin ásamt veislusal uppi er 287m2.
Heildarflatarmál á húsinu er 447m2.
Bílastæði fylgir húsinu. Húsið selst eða leigist með öllu tilheyrandi. Fullbúnum eldhúsum og tækjum.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.