Tunguvegur 42, Reykjavík
76.900.000 Kr.
Raðhús
4 herb.
110 m2
76.900.000
Stofur
1
Herbergi
4
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
3
Byggingaár
1960
Brunabótamat
44.950.000
Fasteignamat
53.900.000

CROISETTE.HOME og Karl Lúðvíksson Löggiltur Fasteignasali kynna í einkasölu snyrtilegt raðhús við Tunguveg 42. Eignin er á þremur hæðum sem skiptist þannig að á jarðhæð er eldhús, borðstofa og stofa með útgengi út í garð. Í kjallara er stórt þvottahús og geymsla. Á efri hæð er baðherbergi og tvo svefnherbergi en þar voru áður tvo barnaherbergi en einu hefur verið breytt og stækkað í eitt. Stutt er í Réttarholtsskóla, Breiðagerðisskóla og leikskóla í nágrenninu. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is og Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða eva@croisette.is.  


Smelltu hér til að sækja söluyfirlit

Nánari lýsing:
Forstofa: Dökkgráar flísar á gólfi, stór og rúmgóður fataskápur. Gengið niður í þvottahús og geymslu úr forstofu.
Stofa/borðstofa: Opin og björt stofa en útgengt er út á sólpall og garð til suðurs úr stofunni. Eldhús og stofa mynda opið og skemmtilegt rými. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Innrétting er smekkleg og snyrtileg með góðum tækjum. Gott skápapláss, harðviður í borðplötu, dökkgráar flísar milli skápa. Harðparket á gólfi
Hjónaberbergi: Gott herbergi með fataskápum, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi: Gott herbergi með stóru fataherbergi, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með baðkari með sturtu, góð lítil innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, flísar á gólfi og hluta af veggjum.
Þvottahús og geymsla: Gott þvottahús og stór geymsla er í kjallara. Ekki full lofthæð.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is 
Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða eva@croisette.is.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

 




Sækja söluyfirlit

Vinsamlegast fyllið út formið til að fá sent söluyfirlit

Karl Lúðvíksson
Sölustjóri Croisette.home & lfs.