CROISETTE HOME og Karl Lúðvíksson Löggiltur Fasteignasali kynna í einkasölu fallega 89,5 fm íbúð á jarðhæð ásamt 12,3 fm geymslu við Vinastræti 6 í Garðabæ. Eigninni fylgir sérstæði í bílageymslu. Í íbúðinni er gott hjónaherbergi með fataherbergi, barnaherbergi með fataskáp, baðherbergi og þvotthús. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými, þaðan er gengið út á afgirtan pall. Allar nánari upplýsingar um eignina gefur Karl Lúðvíksson Löggiltur Fasteignasali í síma 663-6700 eða á kalli@croisette.is Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í síma 822-8196 eða á eva@croisette.is
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Nánari lýsing:
Anddyri: Snyrtilegt anddyri með stórum fataskáp og gengið er inn í þvottahús til hægri við anddyri. Harðparket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð, opin og björt stofa með harðparketi á gólfi og úr stofu er gengið út á vestur sólpall.
Eldhús: Stórt opið eldhús með góðu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Gott herbergi með rúmgóðu fataherbergi. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi: Gott barnaherbergi með harðparket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Falleg innrétting, upphengt salerni, sturta, handklæðaofn. Flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Þvottahús: Lítið en snyrtilegt og vel skipulagt þvottahús með innréttingu.
Í sameign er góð geymsla og einnig sérbílastæði í bílageymslu.
Nánari upplýsingar veita:
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is
Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða eva@croisette.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.