Skipholt 70, Reykjavík
49.500.000 Kr.
Fjölbýlishús
2 herb.
49 m2
49.500.000
Stofur
1
Herbergi
2
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
1
Byggingaár
1965
Brunabótamat
29.400.000
Fasteignamat
40.100.000

CROISETTE HOME og Karl Lúðvíksson Löggiltur Fasteignasali kynna í einkasölu glæsilega 49 fm tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð við Skipholt 70. Þetta er eign í húsi sem var tekið í gegn og eru íbúðirnar, sameign og annað í húsinu til fyrirmyndar. Frábær staðsetning og í alla staði vönduð og flott íbúð. Allar nánari upplýsingar veitir Karl Lúðvíksson Löggiltur Fasteignasali í s: 663-6700 eða á kalli@croisette.is og Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða thorbirna@croisette.is 

Fasteignamat 2024: 44.550.000.-

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit

Nánari lýsing:
Stofa: Opin stofa með 3 metra lofthæð, stórum gólfsíðum gluggum og útgengt út á svalir.
Eldhús: Eldhús og stofa eru í opnu rými, snyrtileg og góð eldhúsinnrétting, mosaikflísar á milli skápa, gott skápapláss.
Herbergi: Gott herbergi en skápalaust. Fataherbergi geymsla er í íbúðinni.
Baðherbergi/þvottahús: Stórt og gott baðherbergi lagt mosaikflísum, stór opin sturta með glervegg, uppherngt salerni og góð innrétting fyrir þvottavél. Góðir skápar. Handhlæðaofn. 
Geymsla: Góð geymsla sem er líka nýtt sem fataherbergi.

Húsið er umbreytiverkefni og hannað af Studio Granda og byggt 2017.  Það eru 19 íbúðir í húsinu auk verslunar og þjónusturýma á jarðhæð. Allur frágangur íbúðanna er glæsilegur, innréttingar eru sérsmíðaðar og hannaðar af Studio Granda, innfelld blöndunartæki og koparklæðning á svölum. Inndregnar svalir á húsinu, stórar sameiginlegar þaksvalir sem nýtast vel sem útisvæði. Á jarðhæð er rúmgóð sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Nánari upplýsingar veita:
Karl Lúðvíksson Lfs S: 663-6700 eða kalli@croisette.is
Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 thorbirna@croisette.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

 




Sækja söluyfirlit

Vinsamlegast fyllið út formið til að fá sent söluyfirlit

Karl Lúðvíksson
Sölustjóri Croisette.home & lfs.