CROISETTE.HOME kynnir í einkasölu fallegt 288,5 fm raðhús með bílskúr og auka íbúð í kjallara við Helgubraut í Kópavoginum. Eignin er skráð 288,5 fm að stærð, þar af íbúðarrými 265,2 fm og bílskúr 23,3 fm, og skipist í anddyri, eldhús, stofu, borðsstofu, sjóvarpsstofu, hjónaherbergi, fimm svefnherbergi, Þrjú baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr. Stutt er í alla helstu þjónustu, leiksóla, skóla og verslanir. Barnvænt hverfi þar sem stutt er í leikvelli, fótbotlavelli, göngu og hjólaleiðir. Virkilega vel staðsett eign með mikla möguleika. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is og Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða eva@croisette.is Fasteignamat 2023 er 123.000.000
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Smelltu hér til þess að sjá 3D af Helgubraut 29
Smelltu hér til þess að sjá 3D af Helgubraut 29 - Auka íbúð
Nánari lýsing:
Aðalhæð
Forstofa: Rúmgóð forstofa með skáp og fatahengi. Flísar á gólfum.
Eldhús: Opið og bjart eldhús með fallegri hvítri innréttingu. Ofn og eldavél með spanhelluborði, innfeld uppþvottavél og vaskur. Parket flísar á gólfi. Var endurnýjað 2016.
Stofa/Borðstofa: Rúmgóð og björt stofa, myndar eitt rými með borðstofu. Útgengt í hellulagðan garð. Ljósar flísar á gólfi og að hluta náttúruflísar.
Gestasalerni: Svört inrétting með skúffum, Þvottaaðstaða er inn af gestasalerni. Ljósar flísar á gólfi.
Bílskúr: Góður upphitaður bílskúr með vatni og rafmagni.
Efri Hæð
Stigi: steyptur stigi með eikarparket á stiga.
Hjónaherbergi: Gott herbergi með stórum skápum. Útgengt á svalir. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott og bjart herbergi. Útgengt á svalir. Parket á gólfi.
Svafnherbergi: Stórt og rúmgott herbergi. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Stórt og rúmgott herbergi. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Bjart og rúmgott með baðkari og sturtu. Baðherbergi var endurnýjað 2006. Handklæðaofn. Flísar á gólfi og veggjum.
Aukaíbúð/Kjallari:
Íbúð í kjallara með sérinngangi norðanmegin.
Forstofa: Inngangur með flísum á gólfi.
Eldhús: Með hvítri innréttingu og tækjum, flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með parketi á gólfi.
Herbergi/geymsla: Gluggalaust, rúmgott herbergi sem nýtist sem geymsla eða skrifstofa.
Baðherbergi: Með sturtu og flísum á gólfi.
Þvottaaðstaða: Tenging fyrir þvottavél og þurrkara.
Lóðin: Hellulagður garður í norður. Hellulagt bílaplan með hitalögn ásamt afgirtri verönd í suður.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.