CROISETTE.HOME og Karl Lúðvíksson lfs kynna í einkasölu góða 108 fm fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð við Álfheima 44. Þetta er góð eign í fjölbýli sem nýlega hefur farið í gegnum mikið viðhald og eru því engar framkvæmdir framundan. Stór sameiginlegur garður með leiksvæði fyrir börn, stutt í Langholtsskóla og Laugardalinn. Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarsyni. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is og Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða eva@croisette.is.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit og smelltu hér til að skoða eignina í 3-D
Nánari lýsing:
Andyrri: Gengið er inn í opið andyrri með innbyggðu fatahengi og efri skápum. Parket á gólfi
Stofa: Rúmgóð og björt stofa þaðan sem útgengt er út á suðursvalir. Parket á gólfi.
Eldhús: Gott eldhús með borðkrók. Snyrtileg hvít innrétting með efri og neðri skápum. Flísar á milli skápa og á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi. Parket á gólfi.
Barnaherbergi I: Gott herbergi með opnu skáparými. Plastparket á gólfi.
Barnaherbergi II: Minna barnaherbergið. Plastparket á gólfi.
Baðherbergi: Ágætt baðherbergi með baðkari með sturtu. Málaðar flísar á vegg en dökkar flísar á gólfi.
Í sameign er 8 fm geymsla, sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
Tengi fyrir fjóra rafmagnsbíla á bílastæði.
Nánari upplýsingar veita:
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is
Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða eva@croisette.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.