Hafnarbraut 13, Kópavogur
109.500.000 Kr.
Fjölbýlishús
4 herb.
136 m2
109.500.000
Stofur
1
Herbergi
4
Baðherbergi
2
Svefnherbergi
3
Byggingaár
2019
Brunabótamat
77.520.000
Fasteignamat
93.500.000

CROISETTE.HOME kynnir fallega 136 fm íbúð á 2. hæð með lyftu í fallegu fjölbýli við Hafnarbraut í Kópavogi. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, annað inn af hjónaherbergi. 100 fm þaksvalir ásamt 8,8 fm yfirbyggðum svölum.  Sér þvottahús er inn í íbúðinni. Sér stæði er í bílakjallara með rafmagnstengli fyrir rafbíl. Sér geymsla er í kjallara. Stutt er í íþrótta og tómstundariðju, Kársnesskóla, leikskóla, og alla helstu þjónustu. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is og Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða eva@croisette.is.

ATHUGIÐ - gæludýr leyfileg í húsinu.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit

Smelltu hér til að skoða eignina í 3-D.

Nánari lýsing: 
Anddyri:
Gott anddyri með tvöföldum fataskáp. Harðarket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð, björt og opin stofa, gengið út á 100 fm hellulagðar svalir sem eru til einkaafnota fyrir þessa íbúð. Harðarket á gólfi.
Eldhús: Opið og bjart eldhús, með fallegri brúnni viðar innréttingu. Innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Stórri eyju. Harðarket á gólfi. 
Borðstofa: Samtengd eldhúsi og stofu. Rúmgóð og björt. gengið út á 8,8 fm yfirbyggðar svalir. Harðparket á gólfi.
Þvottahús: Snyrtilegt þvottahús.Brún viðar innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, vask aðstaða. Flísar á gólfi og hluta til á veggjum.
Baðherbergi 1: Snyrtilegt baðherbergi með fallegri brúnni viðar innréttingu. Walk-in sturtu, upphengdu salerni og handklæða ofn. Flísar á gólfi og hluta til á veggjum.
Barnaherbergi 1: Rúmgott, bjart herbergi með rúmgóðum þreföldum skáp. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 2: Rúmgott, bjart herbergi með rúmgóðum þreföldum skáp. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgóð hjónasvíta með stórum fimmföldum skáp. Baðherbergi inn af hjóna herbergi með sturtu, handklæðaofn. Harðparket á gólfi.
Hjónabaðherbergi: Huggulegt baðherbergi með fallegri brúnni viðar innréttingu. Walk-in sturtu, upphengdu salerni og handklæða ofn. Flísar á gólfi og hluta til á veggjum.

Sér stæði er í bílakjallara með rafmagnstengli fyrir rafbíl. Sér geymsla er í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu. 

Virkilega falleg og vönduð eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is 
Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða eva@croisette.is.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette Home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

 

 




Sækja söluyfirlit

Vinsamlegast fyllið út formið til að fá sent söluyfirlit

Karl Lúðvíksson
Sölustjóri Croisette.home & lfs.