CROISETTE.HOME kynnir í einkasölu sérlega fallega 86 fm íbúð á annari hæð í fallegu fjölbýli í við Kelduland í Fossvoginum. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi og eignin er öll til fyrirmyndar en búið að taka íbúðina sjálfa mikið í gegn og viðhald á húsinu sjálfu hefur verið mjög gott. Frábærar göngu- og hjólaleiðir um Fossvoginn. Stutt er í Fossvogsskóla, leikskólann Kvistaborg og alla þjónustu. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is og Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða eva@croisette.is.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Smelltu hér til að sjá 3D
Nánari lýsing:
Anddyri: Gott anddyri. Harðparket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð, björt og opin stofa, myndar eitt rými með borðstofu, útgengt út á rúmgóðar suður svalir. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Bjart og rúmgott eldhús með fallegri blárri inréttingu og góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott herbergi með stórum skápum. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 1: Gott, bjart herbergi. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 2: Gott, bjart herbergi. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi. Hvít skápa innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Sturta og upphengt klósett. Flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Framkvæmdir seinustu ár
2019:
- Nýr gluggi og svalahurð í stofu
- Nýir sólbekkir
2021:
- Baðið tekið í gegn, upphengt klósett, flísalagt gólf, klósettkassi og sturta
- Skipt um öll gólfefni og lista
- Skipt um eldhúsinnréttingu, nýr ofn, ný innbyggð uppþvottavél
2022:
- Flísalagt í eldhúsi
- Nýr háfur í eldhúsi
Nánari upplýsingar veita:
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða
kalli@croisette.is
Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða
eva@croisette.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati.
Stimpilgjald er 0,8% fyrir
einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og
1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl.
Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.