CROISETTE.HOME og Karl Lúðvíksson lfs kynna í einkasölu rúmgóða eign á vinsælum stað við Austurströnd 10 á Seltjarnarnesi. Íbúðin er 104 fm, geymsla 5 fm og út af stofu er gengið út á 17 fm norðursvalir með góðu útsýni yfir flóann. Ibúðinni fylgir einkastæði í bílakjallara. Þetta er vel skipulögð eign á góðu verði sem er gott tækifæri fyrir handlagna að gera góða. Eignin er að miklu leiti upprunaleg og þarfnast viðhalds og endurnýjunar. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is og Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða eva@croisette.is.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Smelltu hér til að skoða eigninni í 3-D
Nánari lýsing:
Stofa: Opin og rúmgóð björt stofa með norður og austurgluggum, mjög gott borðstofupláss, útgengt út á 17 fm einkasvalir með frábæru útsýni til norðurs. Parket á gólfi.
Eldhús: Opið eldhús með ágætri hvítlakkaðri innréttingu, gott skápapláss. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með skápum, útgengt út á sólpall og sérgarð til suðurs. Parket á gólfi.
Barnahebergi I: Ágætt herbergi með lausum skáp, parket á gólfi. Ummerki um gamlan leka úr ofnalögn er við útvegg.
Barnaherbergi II: Ágætt herbergi með lausum skáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Ágæt baðherbergi en að miklu leiti upprunalegt. Ágæt innrétting, flísalagðir veggir og gólf, baðkar með sturtu.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús á hæðinni fyrir ofan.
Í sameign er 5 fm geymsla og hjólageymsla. Íbúðinni fylgir einkastæði í bílakjallara.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.