CROISETTE.HOME og Karl Lúðvíksson lfs kynna í einkasölu virkilega flotta eign með mikla möguleika sem í heildina er skráð sem 170,7 fm en skiptist niður i þrjár íbúðir. 70,2 fm íbúð á miðhæð, 70,2 fm íbúð í kjallara og 30,3 fm stúdíó íbúð. Góð staðsetning í rólegu og grónu hverfi miðsvæðis í Reykjavík. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is og Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða thorbirna@croisette.is
***VINSAMLEGAST BÓKIÐ SKOÐUN***
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Smelltu hér til að skoða miðhæð í 3-D
Smelltu hér til að skoða kjallara í 3-D
Smelltu hér til að skoða stúdíó íbúð í 3-D
Íbúð á miðhæð, nánari lýsing:
Anddyri: Með fataskáp. Harðparket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og opin stofa, myndar eitt rými með eldhúsi. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Opið eldhús við stofu með fallegri hvítri og brúnni innréttingu. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með fallegri hvítri innréttingu. Hornbaðkar, handklæðaofn og upphengt salerni. Pláss fyrir þvottavél inná baði. Flísar á gólfi og að hluta til á veggjum.
Hjónaherbergi: Rúmgott, bjart herbergi með innbyggðum fataskáp. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi: Harðparket á gólfi.
Íbúð í kjallara, nánari lýsing:
Anddyri: Fatahengiskrókur. Flísar á gólfi og svo harðparket á gangi.
Stofa: Snotur, opin stofa, myndar eitt rými með eldhúsi. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Opið eldhús við stofu með ljósbrúnni innréttingu. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi, hornbaðkar, walk-in sturta, handklæðaofn og upphengt salerni. Pláss fyrir þvottavél inná baði. Flísar á gólfi og á veggjum.
Hjónaherbergi: Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi: Harðparket á gólfi.
Stúdíó íbúð, nánari lýsing:
Aðalrými: Sérinngangur, rúmgott og með aukinni lofthæð. Steypt gólf.
Eldhús: falleg dökkbrún innrétting. Flísar á vegg. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með upphengdu salerni, walk-in sturtu og handklæðaofn. Flísar á gólfi og á veggjum.
Húsið hefur farið í gegnum miklar endurbætur og breytingar á síðustu árum. Byggð var m.a. ný hæð ofan á húsið.
Skv. seljanda hafa verið miklar endurbætur og breytingar gerðar á húsinu á undanförnum árum eða frá því að seljandi eignast húsið árið 2017. Húsið var múrað og lagfært að utan. Bílskúr var einnig múraður og einangraður að innan og utan, smíðaður var pallur á þak hússins, en ekki hefur verið fengið leyfi fyrir palli enn sem komið er. Á lóðinni var byggður skúr sem hugsaður er sem geymslur fyrir íbúðirnar. Allar drenlagnir og klóakrör endurnýjuð frá húsi og út í götu. Bætt var hæð ofan á húsið, húsið og tröppur múrað og settar upp svalir og stigi uppá efstu hæð. Kjallaraíbúð og miðhæð voru yfirfarnar og endurbættar árið 2018. Pípulagnir endurnýjaðar að hluta og raflagnir endurnýjaðar.
Nánari upplýsingar veita:
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is
Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða thorbirna@croisette.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.