Fjarðargata 17, Hafnarfjörður
Tilboð
Fjölbýlishús
4 herb.
117 m2
Tilboð
Stofur
Herbergi
4
Baðherbergi
Svefnherbergi
Byggingaár
1994
Brunabótamat
50.000.000
Fasteignamat
63.150.000

CROISETTE.HOME kynnir í einkasölu 117,6 fm íbúð á 4. hæð með lyftu í fallegu fjölbýli á Fjarðargötu 17 í Hafnarfirði. Rúmgóð og snyrtileg íbúð með eindæma fallegt útsýni til norð-vesturs yfir Hafnarfjarðarhöfn. Úr stofu er gengið út á lokaðar svalir. Í eigninni eru tvö svefnherbergi og inni í íbúðinni er sér geymsluherbergi og sér þvottahús. Eignin er fallega staðsett í hjarta Hafnarfjarðar og göngufæri í alla helstu þjónustu. Allar nánari upplýsingar veita Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða thorbirna@croisette.is og Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is 

Fasteignamat 2024: 71.400.000

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Smelltu hér til að skoða eignina í 3D


Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott anddyri með stórum loftháum ljósbrúnum skápum. Parket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og stór stofa með glugga á tvo vegu. Útgengt er úr stofu út á yfirbyggðar svalir. Parket á gólfi.
Eldhús: Mjög gott eldhús með dökkbrúnni innréttingu, útdraganlegar skúffur á neðri hluta innréttingar. Ísskápur fylgir ekki. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Gott herbergi með góðum skápum og hljóðvistar panel á einum vegg. Parket á gólfi.
Gestaherbergi: Herbergi með skáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með ágætri innréttingu, snyrtiborði og sturtu. Flísar á gólfi og á veggjum.
Þvottahús: Er inn af stofu, rennihurð á milli. Innrétting sem rúmar þvottavél og þurrkara.

Virkilega falleg og vel með farin eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veita: 

Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða thorbirna@croisette.is
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.




Senda fyrirspurn vegna

Fjarðargata 17

Karl Lúðvíksson
Sölustjóri Croisette.home & lfs.