CROISETTE.HOME Kynnir í einkasölu virkilega fallega 128 fm íbúð á 2.hæð í nýlegu fjölbýli með lyftu í Mosfellsbæ. Eignin er opin, vel skipulögð og með þrjú svefnherbergi. Frábært útsýni úr stofu. Sér þvottahús er inni í íbúðinni. Stæði í bílastæðakjallara fylgir ásamt 8,8 fm geymslu. Stutt í skóla og leikskóla og alla helstu þjónustu. Nálægð við náttúruna og Álafoss-kvosina, perlu Mosfellsbæjar. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is og Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða thorbirna@croisette.is
Fasteignamat 2024: 81:400.000
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Smelltu hér til að skoða eignina í 3-D
Nánari lýsing:
Anddyri: Gott anddyri með innbyggðum fataskáp. Harðparket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og opin stofa, myndar eitt rými með eldhúsi og borðstofu. Útgengt út á góðar svalir með fallegu útsýni. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Opið við stofu/borðstofu með fallegri ljósri innréttingu, borðplötu úr kvartstein og stórri eyju með keramik helluborði. Niðurfelldur vaskur og AEG ofn í vinnuhæð. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott bjart herbergi með stórum fataskáp. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 1: Rúmgott, bjart herbergi með skáp. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 2: Rúmgott, bjart herbergi með skáp. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með fallegri ljósri innréttingu. Walk-in sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Flísar á gólfi og hluta til á veggjum.
Þvottahús: Snyrtilegt og rúmgott þvottahús með pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Sér stæði í bílakjallara. 8,8 fm geymsla inn af bílastæði ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Húsið er staðsteypt, klætt báruáli frá Áltak, þar sem arkitektahönnun fær að njóta sín til fulls. Innsteypt innfelld lýsing undir svölum. Hiti undir steyptri stétt. 41 bílastæði utandyra, 35 stæði í bílageymsluhúsi. Búið er að leggja fyrir hleðslustöðvum í bílakjallara og búið að setja upp hleðslustöðvar úti fyrir íbúa. Rafmagnsopnanir í anddyrum, póstkassar og mynddyrasími. Teppa-, og flísalögð sameign. Lýsing frá Lumex í sameign. Hljóðplötur í sameign til að dempa hljóð utan íbúðar. Ljósleiðaratenging í smáspennutöflu íbúðar. Góð lofthæð. Glæsileg lóð og sameign í sérflokki.
Virkilega falleg og vönduð eign sem vert er að skoða
Nánari upplýsingar veita:
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is
Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða thorbirna@croisette.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.