Valshlíð 16, Reykjavík
149.500.000 Kr.
Hæð
5 herb.
237 m2
149.500.000
Stofur
2
Herbergi
5
Baðherbergi
2
Svefnherbergi
3
Byggingaár
2020
Brunabótamat
108.330.000
Fasteignamat
134.900.000

CROISETTE.HOME kynnir:
Virkilega vönduð 3ja svefnherbergja þakíbúð á Valshlíð 16, íbúð sem er samtals 237.3 fm á 4.hæð og 5. hæð og með lokuðum bílskúr í bílageymslu og stæði fyrir framan bílskúr.
Aukin lofthæð og gólfsíðir gluggar. Innréttingar eru frá danska fyrirtækinu JKE. 43 fm þakgarður með 5 fm útigeymslu og tengi fyrir heitum potti. Tvennar svalir eru einnig í íbúðinni. 
Útsýni í margar áttir, t.d. Esjan, Perlan, Valssvæðið ofl. 


Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Smelltu hér til þess að sjá eignina í 3D


Nánari lýsing:
Komið inní íbúð af svalagangi á fjórðu hæð. Sérinngangur af svölum sem gefur íbúðinni mikið næði. 
Anddyri með fataskápum.
Svefnherbergi með góðum fataskápum. Parket á gólfum.
Baðherbergi með sturtu og rúmgóðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Terrazzo borðplata undir vask.
Eldhús opið í stofu. Dökk innrétting frá danska fyrirtækinu JKE. Út úr rýminu er útgengi út á rúmgóðan 43 fm þakgarð. Einnig eru svalir út úr borðstofu. Falleg eyja með Terrazzo borðplötu og mjög vönduðum blöndunartækjum.

Gengið upp á efri hæð.
Tvö svefnherbergi með fataskáp.
Úr öðru herberginu er útgengi út á svalir sem snúa til vesturs.
Baðherbergi með sturtu.
Sjónarpsstofa/stofa rúmgóð með útsýni yfir Valssvæðið, Perluna ofl.

Bílskúrinn sem er í bílakjallara er skráður 49,5 fm. Innan bílskúrs er geymsla 39,5 fm með góðu skápaplássi. Bílastæði merkt 0C-15 er fyrir framan bílskúrinn. Raflögn til staðar fyrir rafbílahleðslu. 
Mikil lofthæð í bílakjallara og er hann mjög snyrtilegur. 

Snyrtileg sameign, rúmgóð hjóla- og vagnageymsla.  Garðurinn í miðjunni á húsunum er algjörlega til fyrirmyndar og skapar skemmtilega stemmningu með Skandinavískum blæ. 

Nánari upplýsingar og teikningar einnig hægt að finna á:
https://www.102hlidarendi.is/ibudir/valshlid-16/0420

Fyrirhugað fasteignamat fyrir 2024 er 144.650.000 kr.

Nánari upplýsingar veitir:
Styrmir Bjartur Karlsson, lfs í s. 899 9090 og í styrmir@croisette.is

Eva Ásmundsdóttir, í s. 822 8196 og í eva@croisette.is
Þorbirna Mýrdal, í s. 898 1644 og í thorbirna@croisette.is 
 




Sækja söluyfirlit

Vinsamlegast fyllið út formið til að fá sent söluyfirlit

Styrmir Bjartur Karlsson
Framkvæmdastjóri og lfs.