CROISETTE.HOME kynnir í einkasölu fallega 137,1 fm íbúð á miðhæð í þríbýli við Hólavallagötu 11 í Reykjavík. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og sólskála með útgengt á lítinn pall. Mikið búið að endurnýja. Virkileg falleg eign á einstökum stað við Landakotstún í rótgrónu og rólegu umhverfi, þótt aðeins sé um fimm mínútna gangur í miðbæinn. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is og Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða eva@croisette.is og Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða thorbirna@croisette.is
ATHUGIÐ - eignin er í dag skráð á eitt fastanúmer en fer í ferli til að skipta henni upp í þrjú fastanúmer. Söluyfirlit þetta getur því breyst eftir breytta skráningu. Brunabótamat, fasteignamat og opinber gjöld af eigninni liggja ekki fyrir.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Smelltu hér til þess að sjá 3D
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða og bjarta forstofu með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi.
Eldhús: Bjart og rúmgott eldhús með nýlegri hvítri innréttingu. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Gott herbergi með útsýni yfir Landakotskirkju. Gott skápa og hillupláss. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Virkilega fallegt baðherbergi. Walk in sturta og upp hengt salerni. Falleg hvít innrétting með góðu skápaplássi. Handklæðaofn. Flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott og bjart herbergi með stórum hornglugga með útsýni yfir Landakotstún og kirkju.
Nánari upplýsingar veitta:
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali, karl@croisette.is, S: 663-6700
Eva Margrét Ásmundsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala, eva@croisette.is, S: 822-8196
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.