CROISETTE.HOME og Karl Lúðvíksson lfs kynna í einkasölu 70,2 fm íbúð á 3.hæð með sérinngang. Íbúðin er á matsstigi 4 en töluvert af þeim atriðum sem þarf til að uppfylla matsstig 5 eru komin. Gert er ráð fyrir tvem svefnherbergjum, baðherbergi og opnu eldhúsi og stofu en þaðan er útgengt út á 6 fm svalir. Á lóðinni er 24,7 fm geymsla sem búið er að breyta í stúdíó íbúð. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða [email protected] og Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða [email protected]***VINSAMLEGAST BÓKIÐ SKOÐUN***
SMELLTU HÉR TIL AÐ S´KJA SÖLUYFIRLITSMELLTU HÉR TIL ÞESS AÐ SJÁ EIGNINA Í 3DNánari lýsing á íbúð: Íbúðin er á efstu hæð með sérinngang. Gert er ráð fyrir tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og eru stofu og eldhús í einu opnu rými. Eignin er á matsstigi 4 en búið er að einangra loft og veggir komnir upp að hluta og búið að leggja fyrir gólfhita. Salerniskassi og lagnir komnar inná baðherbergi. Innbyggð blöndunartæki. Frá stofu er gengið út á svalir með fallegu útsýni. Fallegar hvítar innihurðir fylgja en uppsetning er eftir.
Nánari lýsing á stúdíó íbúð: Aðalrými: Sérinngangur, rúmgott og með aukinni lofthæð. Skv. myndum er grátt teppi á gólfum en búið er að leggja harðparket á gólfin.
Eldhús: falleg dökkbrún innrétting. Flísar á vegg. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með upphengdu salerni, walk-in sturtu og handklæðaofn. Flísar á gólfi og á veggjum.
Skv. seljanda hafa verið miklar endurbætur og breytingar gerðar á húsinu á undanförnum árum eða frá því að seljandi eignast húsið árið 2017. Húsið var múrað og lagfært að utan. Bílskúr var einnig múraður og einangraður að innan og utan, smíðaður var pallur á þak hússins, hægt er sækja um leyfi fyrri palli á þaki hússins. Á lóðinni var byggður skúr sem hugsaður er sem geymslur fyrir íbúðirnar. Allar drenlagnir og klóakrör endurnýjuð frá húsi og út í götu. Bætt var hæð ofan á húsið, húsið og tröppur múraðar og settar upp svalir og stigi uppá efstu hæð. Kjallaraíbúð og miðhæð voru yfirfarnar og endurbættar árið 2018. Pípulagnir endurnýjaðar að hluta og raflagnir endurnýjaðar.
Nánari upplýsingar veita:
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða
[email protected] Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða
[email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.