CROISETTE.HOME kynnir í einkasölu 197 fm tveggja hæða einbýlishús með 41 fm bílskúr við Njarðvíkurbraut í Reykjanesbæ. Í húsinu eru fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, samliggjandi eldhús og borðstofa, tvær stofur og þvottahús. Stutt er í Akurskóla, leikskólann Holt. leikskólann Akur og Krambúð. Virkilega falleg eign í rólegu, fjölskylduvænu hverfi í Innri-Njarðvík. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða [email protected] og Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða [email protected].SMELLTU HÉR TIL ÞESS AÐ SJÁ EIGNINA Í 3DSMELLTU HÉR TIL ÞESS AÐ FÁ SÖLUYFIRLITNánari lýsing:
Neðri hæð
Anddyri: Gott anddyri með rúmgóðum skápum. Rennihurð á milli rýma. Flísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa, myndar eitt rými með borðstofu. Parket á gólfi.
Eldhús: Opið og vel skipulagt eldhús með miklu skápaplássi og borðkrók. Parket á gólfi.
Þvottahús: Er inn af eldhúsi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt í bakgarð.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með ljósgrænni/viðar innréttingu með góðu skápaplássi. Hornbaðkar/sturtuklefi og handklæðaofn. Flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi: Er á neðri hæð, rúmgott og bjart með sér fataherbergi.
Efri hæðBarnaherbergi 1/2: Eru samliggjandi. Rúmgóð herbergi með skáp. Parket á gólfi.
Barnaherbergi 2: Rúmgott herbergi. Parket á gólfi.
Barnaherbergi 3: Rúmgott herbergi. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Bjart baðherbergi. Sturtuklefi. Flísar á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með aðgengi út á svalir með fallegu útsýni.
Lóðin er alls 704 fm, með upplýstri heimreið að bílskúr. Rúmgóður viðarpallur og áhaldaskúr í bakgarði Framkvæmdir seinustu árasamkvæmt seljanda:
- Risið var sett á húsið 1984.
- Skipt um glugga borðstofu fyrir nokkrum árum.
- Skipt um þak og þakgluggana þrjá árið 2021
- Öll neðri hæðin var endurnýjuð árið 2001.
- Skipt um glugga (tveir) í eldhúsi árið 2022
- Skipt um botnstykki í gluggum í bílskúr og skipt um gler í 2 gluggum. Einnig sett ný lausafög í þessum gluggum. 2023
Nánari upplýsingar veitta:Eva Margrét Ásmundsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala,
[email protected], S: 822-8196
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali,
[email protected], S: 663-6700
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati.
Stimpilgjald er 0,8% fyrir
einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og
1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl.
Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.