CROISETTE.HOME kynnir í einkasölu fallega 137.8 fm íbúð á fyrstu hæð, í fallegu tvíbýli á Kársnesinu í Kópavogi. Í íbúðinni eru fjögur svefnherbergi og er búið að taka íbúðina sjálfa mikið í gegn. Stutt er í Kársnesskóla, leikskóla og alla þjónustu. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða [email protected] og Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða [email protected]. SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3D
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLITATH - Seljendalán í boði.Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott andyri
með flísum á gólfi.
G
eymsla: Er inn af forstofu undir stiga.
Þvottahús: Á vinstri hönd frá forstofu er
þvottahús, tenging er fyrir þvottavél og þurrkara, borð og hillur þar fyrir ofan.
Stofa: Björt og opin stofa, útgengt út á rúmgóðan viðarpall í garðinum. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Opið og bjart eldhús með nýlegri innréttingu. Harðarket á gólfi.
Hjónaherbergi: Gott herbergi með stórum skápum. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 1: Rúmgott herbergi með skáp. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 2: Bjart og rúmgott herbergi með skáp. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 3: Bjart og rúmgott herbergi með skáp. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Nýtt baðherbergi með "walk in" sturtu og upphengdu klósetti. Góðu skápaplássi og handklæðaofn. Flísar á gólfi.
Nýlegar framkvæmdir: búið er að skipta um gler og glugga þar sem þurfti í íbúðinni, múrviðgerðum að utan lokið sumar 2023 og húsið málað.
Góður bílskúr 22,8 fm fylgir íbúðinni en hann stendur laus frá húsinu og þar er lítið mál að gera stúdíóíbúð með góðum leigutekjum.Virkilega vel staðsett fjölskyldueign á vinsælum stað á Kársnesinu í Kópavogi.Nánari upplýsingar veita: Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða
[email protected] Eva Margrét Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða
[email protected]. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati.
Stimpilgjald er 0,8% fyrir
einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og
1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl.
Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.