Croisette Real Estate Partner kynnir TIL LEIGU - Bankastræti 5 .Í þessari sögufrægu og fallegu byggingu í miðbænum eru lausar til leigu annars vegar tæplega 90 fm skrifstofa á þriðju hæð, skrifstofan er merkt 03-01-03 á grunnmynd hæðar, og hins vegar ríflega 135 fm skrifstofa á sömu hæð, merkt á grunnmynd hæðar nr. 03-01-01. Gluggar vísa með fallegu útsýni yfir að Bankastræti úr báðum skrifstofum sem og yfir hafið til norðurs úr stærri skrifstofunni. Glæsileg aðkoma er inn í húsið með veglegum stiga og steindum fallegum glugga. Lyfta er í húsinu
Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Ólafsson, Sölustjóri - atvinnueignir, í síma 766-6633, tölvupóstur [email protected].
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í húsaleigulögum nr. 36/1994 er kveðið á um heimild aðila kalla til skoðunaraðila til úttektar á húsnæðinu fyrir afhendingu. Croisette real estare partner bendir væntanlegum leigjendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Í tilfelli atvinnuhúsnæðis er ríkari heimild aðila að semja sig frá lögum og gildir þá ákvæði leigusamnings ef til ágreinnings kemur.