Vefarastræti 19, 270 Mosfellsbær
74.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
102 m2
74.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2017
Brunabótamat
64.890.000
Fasteignamat
71.000.000

CROISETTE - KNIGHT FRANK kynna í einkasölu virkilega fallega 102 fm endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi í nýlegu fjölbýli í Mosfellsbæ. Eignin er opin, vel skipulögð og með tvö svefnherbergi. Úr stofur er gengið út á rúmgóða hellulagða og afgirta verönd sem snýr suður. Geymsla er innan íbúðar. Bílastæði í bílageymslu. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. Nálægð við náttúruna og Álafoss-kvosina, perlu Mosfellsbæjar. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða [email protected] og Þorbirna Mýrdal, löggiltur fasteignasali í s. 888-1644 eða [email protected]

Þrívíddarteikning af eigninni:

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3-D

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing:
Anddyri: Gott og bjart anddyri með innbyggðum fataskáp. Flísalagt gólfi.
Stofa: Rúmgóð, opin og björt stofa, myndar eitt rými með eldhúsi og borðstofu. Úr stofu er gengið út á góða hellulagða og afgirta suðurverönd. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Opið við stofu/borðstofu með fallegri ljósri innréttingu. Ofn og helluborð frá AEG. Innbyggð uppþvottavél. Pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Harðparket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með stórum fataskápum. Inn af svefnherberginu er geymsla. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi: Innbyggður fataskápur. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með fallegri ljósri innréttingu. Walk-in sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og hluta til á veggjum.

Sér stæði í bílakjallara.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða [email protected] 
Þorbirna Mýrdal, löggiltur fasteignasali í s. 888-1644 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.


 

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.