Croisette Iceland logo
Skráð 8. sept. 2025
Söluyfirlit

Þrastahraun 2

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
244.2 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
189.000.000 kr.
Fermetraverð
773.956 kr./m2
Fasteignamat
143.700.000 kr.
Brunabótamat
141.250.000 kr.
Mynd af Styrmir Bjartur Karlsson
Styrmir Bjartur Karlsson
Framkvæmdastjóri og lfs.
Byggt 1963
Þvottahús
Garður
Tveir inngangar
Fasteignanúmer
2080648
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Gott
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Gott
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Nýlega yfirfarið
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallar í kringum húsið
Upphitun
Ofnar
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
CROISETTE - KNIGHT kynnir eignina Þrastahraun 2, 220 Hafnarfjörður. Eignin er alls 244,2 fm að stærð sem skiptist þannig að efri hæðin er 155,3 fm, neðri hæðin (aukaíbúð) 62,7 fm og bílskúrinn 26,2 fm sem er innréttaður sem stúdíóíbúð. Fallegt hús í fúnkísstíl á hornlóð á þessum vinsæla stað í Hafnarfirði sem er með fimm svefnherbergi í heildina. Stórt og opið eldhús með aðgengi á stóra verönd. Mjög bjart og fallegt hús með mikilli náttúrlegri lýsingu. Hús sem er búið að endurnýja mikið í s.l. ár. og er í mjög góðu ástandi. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Styrmir Bjarur Karlsson löggiltur fasteignasali í S: 899-9090 eða styrmir@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT.

Nánar um eignina:
Efri hæð:  Rúmgóð forstofa með góðum skápum. Hol/gangur.  Björt og stór stofa og borðstofa, gluggar í norður, austur og suðurátt, útg. út á svalir.  Eldhúsið er opið í stofuna, eyja, nýju spanhelluborði, háfur, glerhurð út á stóra afgirta verönd með heitum potti.   Þrjú herbergi (voru fjögur, lítið mál að breyta), fataherbergi inn af hjónaherberginu.  Lítið fata og snyrtiherbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi, wc í vegg, baðkar, sturta, innrétting.  Þvottahús með flísum á gólfi, útg. út á lóð. 
Neðri hæð:  2ja herbergja íbúð með sér inngangi.
Bílskúrinn: Stúdíóíbúð sem er snyrtilega innréttuð með klóseti og sturtuklefa. 
Stór garður með tveimur útigeymslum.

Falleg lóð, stór afgirt verönd, heitur og kaldur pottur.  Virkilega góð staðsetning, stutt í margskonar þjónustu.

Viðhald og endurbætur að sögn seljanda sl. ár:
2023 : Húsið var drenað og skipt um allar frárennslislagnir.
2024: Þakdúkur yfirfarinn.
Múrviðgerðir og málað.
Ný stúdíóíbúð í bílskúr.
Allt húsið málað að innan.
Baðherbergi tekið í gegn.
Eldhúsinnrétting sprautuð upp á nýtt.
Ný span helluborð á eyju.
Íbúðin í kjallaranum máluð og nýtt parket sett á hana. 
2025 : Pallurinn málaður.
Heitur og kaldur pottur.
Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
Bílastæði fyrir 3 bíla.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is 
Styrmir Bjartur Karlsson, framkvæmdastjóri og lfs., í síma 899 9090, tölvupóstur styrmir@croisette.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette - Knight Frank fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Hamarsbraut 4
220 Hafnarfjörður
204.6 m2
Einbýlishús á tveimur hæðum
613
880 þ.kr./m2
180.000.000 kr.
© Copyright 2025 - Croisette Iceland
Knúið af
Fasteignaleitin