Croisette Iceland logo
Skráð 5. ágúst 2026
Söluyfirlit

Ljárskógar

Jörð/LóðVesturland/Búðardalur-371
90,161 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
700.000.000 kr.
Fermetraverð
7.764 kr./m2
Fasteignamat
2.510.000 kr.
Brunabótamat
82.400.000 kr.
Mynd af Karl Lúðvíksson
Karl Lúðvíksson
Sölustjóri - Íbúðareignir
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2117024
Húsgerð
Jörð/Lóð
Byggingarefni
Steypt
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Yfirfarið
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
CROISETTE kynnir í einkasölu Ljárskóga í Dölum, einstakt tækifæri fyrir framtakssama kaupendur til að eignast eina glæsilegustu og landmestu jörð Íslands. Jörðin teygir sig frá botni Hvammsfjarðar og tæpa 25 kílómetra inn að Rjúpnafelli og mælist tæplega 11.000 hektarar að stærð. Bæjarstæðið er hið glæsilegasta með stórbrotnu útsýni yfir Hvammsfjörðinn. Á jörðinni stendur íbúðarhús sem í dag er nýtt sem veiðihús fyrir Fáskrúð og þykir með fallegri veiðihúsum landsins. Nánari upplýsingar veitir Karl Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 6636700, tölvupóstur kalli@croisette.is.

Sérstaða, laxveiði og hlunnindi:
Í gegnum landið rennur hin nafntogaða laxveiðiá Fáskrúð í Dölum. Áin er einstaklega falleg, 24 km að lengd, með yfir 55 fjölbreytta veiðistaði og frábæru aðgengi meðfram öllu veiðisvæðinu. Veiðimenn njóta mikils næðis og einkasvæðis í dalnum, en slíkt „privacy“ er fáheyrt í tveggja stunda akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.  Veiðihúsið hefur líka verið leigt út til erlendra ferðamanna utan veiðitíma og verið mjög vel bókað. Gistinóttin hefur verið 100.000.

Veiðiréttur og stýring:
Fáskrúð er einungis í eigu tveggja jarða, Ljárskóga og Glerárskóga. Ljárskógar hafa leigt hlut Glerárskóga undanfarin ár og er áframhaldandi samningur, sem tryggir heildar stýringu á ánni og nýtingu veiðileyfa.

Meðalveiði og vernd:
Meðalveiði síðustu 20 ára er 226 laxar. Frá 2018 hefur aðeins verið leyfð fluga og skyldu sleeping á stórlaxi og hrygnum (sleppihlutfall er nú 75–80%), sem hefur skilað sér í aukningu á tveggja ára laxi.

Miklir vaxtarmöguleikar:
Á síðustu árum hefur uppvaxtarsvæðið fyrir ofan Katlafossa og Króksfoss verið nýtt, en rannsóknir sýna að uppvaxtarskilyrði seiða þar eru mun betri en neðar í ánni. Þessi nýting er nú þegar að skila sér í aukinni fiskgengd og með undirbúningi vatnsmiðlunar og góðri ræktun getur Fáskrúð auðveldlega skilað 300–400 laxa meðalveiði á ári.

Aðrar veiðar:
Jörðin er þekkt sem frábært rjúpnaland þar sem sjálfbær veiði hefur verið stunduð í hófi. Auk þess eru nokkur vötn á jörðinni með staðbundnum urriða og bleikju.

Framtíðarsýn í skógrækt og umhverfi:
Á Ljárskógum hefur verið unnin mikil og metnaðarfull undirbúningsvinna í skógrækt og landbótum sem skapar gríðarleg framtíðarverðmæti. Gróðursetning er komin af stað og búið er að gróðursetja í 130 hektara í myndarlegan kraga í kringum bæjarstæðið. Umhverfismat fyrir skógrækt á 5.500 hekturum af blönduðum skógi er á lokastigi.

Önnur gæði:
Einstaklega gott berjaland sem nær langt upp á heiði.

Fasteignasali hefur öll ítarleg gögn um jörðina, veiðina, framkvæmd skógræktar, undirbúning vatnmiðlunar, umhverfismöt vegna skógræktar og miðlunar ásamt örðum ítarlegri gögnum.  Allar frekari upplýsingar veitir Karl Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í S: 663-6700 eða á kalli@croisette.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
 
Fasteignanúmer
2117024
Húsmat
29.800.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
29.800.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 1978
35.8 m2
Fasteignanúmer
2117024
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.300.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1978
125.2 m2
Fasteignanúmer
2117024
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
25.900.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
25.900.000 kr.
Brunabótamat
67.100.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
90,000 m2
Fasteignanúmer
2117024
Húsmat
1.015.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
1.015.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Fasteignanúmer
2117024
Húsmat
1.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
1.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Croisette Iceland logo
Croisette Iceland ehf.
kt. 441120-0790
Hafðu samband
allir@croisette.isS: 569 9090
Kirkjuteigur 21
kt. 4411200790
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Croisette Iceland
Knúið af
Fasteignaleitin