Croisette Iceland logo
Skráð 23. sept. 2026
Söluyfirlit

Merkurhraun 9

SumarhúsSuðurland/Selfoss-803
149.7 m2
4 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
189.900.000 kr.
Fermetraverð
1.268.537 kr./m2
Fasteignamat
86.650.000 kr.
Brunabótamat
95.100.000 kr.
Mynd af Karl Lúðvíksson
Karl Lúðvíksson
Sölustjóri - Íbúðareignir
Byggt 2024
Garður
Margir inngangar
Fasteignanúmer
2347045
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
CROISETTE kynnir í einkasölu fallegt 150 fm sumarhús við Merkurhraun 9 í Flóahreppi, 803 Selfoss. Eignin er á 4.000 fm eignarlóð í landi Skálmholts í Flóahreppi. Húsið skiptist í fjögur svefnherbergi, rúmgott alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, tvö baðherbergi, sauna, svefnloft og virkilega fallegri og vel hannaðri lóð. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing:
Anddyri:
 Rúmgott anddyri með flísum á gólfi með fatahengi og innfelld lýsing í lofti. Frá andyri er gengið inn í alrýmið.
Stofa: Stofan er opin og rúmgóð með fallegri frístandandi kamínu. Eikarparket á gólfi.
Borðstofa: Rúmgóð borðstofa við eldhús. Útgengt er frá alrými út á vestur sólpall. 
Eldhús: Falleg innrétting er í eldhúsi með span-helluborði, ofn og örbyglgjuofn í vinnuhæð. Í innréttingunni er tveir ísskápar með frystiskápum. Flísar milli skápa. Eikarparket á gólfi
Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi innaf forstofu með fataskáp og gólfsíðum glugga. Eikarparket er á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott svefnherbergi með fataskáp og gólfsíðum glugga. Eikarparket er á gólfi.
Svefnherbergi III: Gott svefnherbergi með fataskáp og gólfsíðum glugga. Eikarparket er á gólfi.
Baðherbergi I: Rúmgott baðherbergi með góðri innréttingu, vaskur og handklæðaofn. Rúmgóð sturta, upphengt salerni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og veggjum.
Sauna: Gæsileg sauna með flísum á gólfi. Stór gluggi með skyggðu gleri sem snýr út á pall.
Baðherbergi II: Rúmgott baðherbergi með innréttingu, vaskur og handklæðaofn. Rúmgóð sturta, upphengt salerni. Flísar á gólfi og veggjum.
Gangur: Af gangi er gengið út á lokaðan sólpall með hárri skjólgirðingu, flísar á gólfi. Á sólpalli er heitur pottur með wifi hitastýringu.

Efri hæð: Gengið eru upp fallegan stiga frá alrými uppá svefnloft þar sem er opið rými og eitt svefnherbergi. Bæði rými eru með flóttaleið og neyðarstiga. Eikarparket er á gólfi.

Útisvæði:
Geymsluskúr um 15 fm er á lóðinni. Einnig eru tvö gróðurhús um 8 fm hvort.
Vel hannað, hellulagt svæði með skjólgirðingu kring um fallegt eldstæði er á lóðinni.
Bílastæði er fyrir 4-5 bíla. Stór 4.000 lítra rotþró.

Staðsetning:
Merkurhraun 9 er í landi Skálmholts í Flóahreppi. Svæðið er vel staðsett og þaðan er stutt í fjölbreytta þjónustu á Selfossi, Flúðum og í Laugarási. Umhverfið einkennist af fallegu hraunlandslagi og lyngmóa og mikilli náttúrufegurð. 
Í þessu húsi er steypt plata með hita í gólfi, lokuðu hitakerfi, forhitari fyrir neysluvatn og loftræstikerfi, útsog í votrýmum og innblástur í öðrum rýmum. Hiti er í hellulagðri gangstétt út að bílaplani.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s: 663-6700 eða kalli@croisette.is 
Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is


Eignin Merkurhraun 9 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 234-7045, merkt 01-01, birt stærð 149.7 fm.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Croisette Iceland logo
Croisette Iceland ehf.
kt. 441120-0790
Hafðu samband
allir@croisette.isS: 569 9090
Kirkjuteigur 21
kt. 4411200790
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Croisette Iceland
Knúið af
Fasteignaleitin