Croisette Iceland logo
Skráð 12. okt. 2026
Söluyfirlit

Drafnarstígur 5

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
102.9 m2
2 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
134.900.000 kr.
Fermetraverð
1.310.982 kr./m2
Fasteignamat
117.150.000 kr.
Brunabótamat
69.600.000 kr.
Mynd af Karl Lúðvíksson
Karl Lúðvíksson
Sölustjóri - Íbúðareignir
Byggt 1889
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2000989
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
St+hlaðið
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað
Raflagnir
Endurnýjað
Frárennslislagnir
Endurnýjað að stofnlögn
Gluggar / Gler
Endurnýjað
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Upphitun
Gólfhiti/Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
CROISETTE kynnir í einkasölu Brekkuholt, sögulegt hús á einum eftirsóttasta stað í Gamla Vesturbænum. Brekkuholt er sjarmerandi steinhús við Drafnarstíg 5 sem er róleg íbúðargata með höfnina, gamla bæinn og miðborgina í stuttu göngufæri. Húsnæðið hefur verið vandlega endurgert þar sem saga þess fær að njóta sín. Berir steinveggir, gegnheil eikargólf og hefðbundnir gluggar skapa hlýlegt og persónulegt heimili. Opið eldhús, björt stofa og tvö svefnherbergi eru öll á einni hæð og einkaverönd býður upp á góða útiveru. Stærð húsnæðis er 102,9 fm og stendur á 227 fm eignarlóð og fylgja tvö einkabílastæði við húsið, sem er sjaldgæft í miðbænum. Kjallari húsnæðis nýtist sem geymsla. Allar nánari upplýsingar veitir Karl Lúðvíksson Lfs í s: 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT


Nánari lýsing:
Húsið hefur verið mikið endurgert og stækkað í áföngum, með áherslu á að varðveita upprunalegan karakter þess samhliða endurnýjun innviða og bættri nýtingu rýmis. Sýnileg steinhleðsla, gegnheilt eikarparket, skáloft og þakgluggi gefa heimilinu hlýlegt og bjart yfirbragð. Stofa, borðstofa og eldhús tengjast í opnu alrými þar sem upprunaleg steinhleðsla fær að njóta sín. Íbúðarrýmið er á einni hæð og svefnherbergin eru tvö. Viðbyggingar hafa aukið rými við eldhús, bætt við öðru svefnherbergi og stækkað inngang og forstofu. Baðherbergi er með baðkari og sturtuaðstöðu, náttúrusteini á gólfi og gólfhita. Undir hluta hússins er rúmgóður geymslukjallari með sérinngangi að framan, steyptri gólfplötu og um tveggja metra lofthæð.

Hér gefst tækifæri til að eignast heimili með mikinn karakter og tengingu við byggingarsögu Reykjavíkur.

Framkvæmdasaga:
Húsið hefur verið endurbætt frá grunni og stækkað í áföngum, með virðingu fyrir sál og útliti gamla steinbæjarins. Gólfhiti er í völdum rýmum.
Eftirfarandi yfirlit er samkvæmt upplýsingum eiganda.

2006 til 2019 · Grunnendurbætur, kjallari og lóð
- Kjallari var grafinn út, dýpkaður og breikkaður þannig að lofthæð varð um tveir metrar. Steyptar undirstöður voru tengdar upprunalegri steinhleðslu og stofugólf endurbyggt með stálbitum.
- Raflagnir og rafmagnstafla endurnýjaðar ásamt vatnslögnum, hitalögnum og frárennslislögnum innan húss og út að stofnlögnum.
- Einangrun endurnýjuð og innveggir klæddir birkikrossviði og gifsi. Upprunaleg steinhleðsla var lagfærð, hreinsuð og gerð sýnileg í meira mæli.
- Eldhús flutt aftar og endurbyggt.
- Baðherbergi endurgert frá grunni, gólfhiti settur þar og í forstofu.
- Öll gólf flotuð og lögð 22 mm gegnheilu eikarparketi og náttúrusteini í forstofu og baðherbergi.
- Gluggar endurnýjaðir, Velux Þakgluggi settur yfir eldhús og gluggi í stofukvisti endurnýjaður.

Lóð og ytra byrði: Húsið var heilmálað, lóð hreinsuð og timburpallur byggður. Í bakgarði var steypt plata fyrir fyrirhugaða stækkun og viðbótarherbergi. Skotrenna milli húsanna var endurnýjuð og hafist handa við endurnýjun ytri klæðningar. Dren og rakavarnir yfirfarnar.

2022 til 2026 · Stækkun, breytt skipulag og ný ytri klæðning
- Forstofa stækkuð, inngangur færður framar og skápapláss aukið. Öðru svefnherbergi bætt við að aftan og rými við eldhús aukið.
- Eldri klæðning fjarlægð og undirliggjandi timburklæðning yfirfarin og endurnýjuð eftir þörfum. Öndunardúkur settur á þak og veggi, sem voru síðan lektuð og klædd litaðri álbáru.
- Nýjar þakrennur og niðurfallsrör úr áli sett upp.
- Eldri gluggar og útihurð gerð upp og máluð.
- Nýjum gluggum og nýrri garðhurð komið fyrir og gerefti endurnýjuð.
- Timburverönd aðlöguð og yfirborðsmeðhöndluð.
- Rafmagnsúttak og vatnskrani sett upp í bakgarði.
- Útilýsingu komið fyrir í þakskeggi og umhverfis húsið.
- Jarðvegsskipt að framan jarðvegsdúkur settur og möl yfir fyrir bílastæði.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is 
Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is


Eignin Drafnarstígur 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-0989, birt stærð 102.9 fm.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

 
Croisette Iceland logo
Croisette Iceland ehf.
kt. 441120-0790
Hafðu samband
allir@croisette.isS: 569 9090
Kirkjuteigur 21
kt. 4411200790
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Croisette Iceland
Knúið af
Fasteignaleitin