Croisette Iceland logo
Skráð 2. júlí 2025
Söluyfirlit

Skarðsbraut 1

FjölbýlishúsVesturland/Akranes-300
116.2 m2
4 Herb.
Verð
57.800.000 kr.
Fermetraverð
497.418 kr./m2
Fasteignamat
50.250.000 kr.
Brunabótamat
54.700.000 kr.
Mynd af Davíð Ólafsson
Davíð Ólafsson
Sölustjóri - atvinnueignir
Byggt 1977
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2100705
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað.
Raflagnir
Ekki vitað.
Frárennslislagnir
Ekki vitað.
Gluggar / Gler
Ekki vitað.
Þak
Ekki vitað.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðvestur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Starfsamanni fasteignasölunnar hefur ekki verið gerð kunnugt um galla á eigninni.
CROISETTE - KNIGHT FRANK kynna í einkasölu 116,2 fm þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð með í fjölbýli við Skarðsbraut 1 á Akranesi
Íbúðin er 91,1fm og 25,1fm herbergi í kjallara. Eignin er í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi, stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. 
Núverandi eigendur hafa endurnýjað alla íbúðina, skipt um allt gólfefni, forstofuskáp, eldhúsinnréttingu, baðherbergi, fataskáp í hjónaherbergi og innéttað þvottahús.
Nýlega var húsið klætt að utan með áli og salerni lagað á kjallaragangi. Nýlegt teppi á stigagangi. Hleðslustaur fyrir rafmagnsbíla.  Getur verið laus fljótt eftir kaupsamning.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGN Í 3-D

Nánari lýsing:
Anddyri: Fataskrápur og harðparket á gólfi
Stofa: Rúmgóð og opin stofa, myndar eitt rými með borðstofu. Úr stofu er útgengt út á góðar svalir sem snúa í suðvestur. Harðparket á gólfi inni í stofu.
Eldhús: Brún viðar innrétting með svartri borðplötu. Gott skápapláss. Harðparket á gólfi. 
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með salerni, vask og sturtuklefa. Flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi: Gott herbergi með loftháum fataskáp. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi: Rúmgott og með harðparket á gólfi.
Þvottahús: Hvít innrétting, vaskur og borðplata.Tengi fyrir þvottavél og þurkara. Flísar á gólfum.
Kjallaraherbergi: Harðparket á gólfi og nýuppgert að hluta ( notað sem geymsla í dag).

Sameiginleg hjóla/vagnageymsla og sameiginlegt salerni í kjallara. 

Fræmkvæmdalisti:
Árið 2002: Skipt um glugga á suður-austur- og vesturhlið (ekki stofuglugga) og glerlista á norðurhlið.
Árið 2006: Varmaskiptir.
Árið 2007: Láréttar neysluvatnslagnir endurnýjaðar. Sorprennum lokað og sorptunnuskýli sett í staðinn.
Árið 2009: Stigahús máluð og skipt um teppi. Settur dúkur á þök stigahúsa.
Árið 2010: Lóðréttar neysuvatnslagnir endurnýjaðar.
Árið 2015: Húsið álklætt og einangrað að utan, skipt um þakjárn, steyptir fletir málaðir, timburverk á svölum og glerlistar á stofugluggum endurnýjaðir.
Árið 2018: Kjallari. Skipt um hurðar fyrir geymslum. Búnar til tvær vagna- og kerrugeymslur í sitthvorum enda. Snyrting fyrir miðju húsi endurnýjuð. Gólf og veggir málaðir.
Árið 2021: Staur fyrir rafmagnsbíla.



Nánari upplýsingar veita: 
Davíð Ólafsson Sölustjóri - atvinnueignir, í síma 766-6633, tölvupóstur david@croisette.is.
Elín Auður Traustadóttir, löggiltur fasteignasali, sími 858-0978, tölvupóstur elin@croisette.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Croisette Iceland logo
Croisette Iceland ehf.
kt. 441120-0790
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - Croisette Iceland
Knúið af
Fasteignaleitin