Chalet duque , 956 Tenerife
482.300.000 Kr.
Parhús/ Parhús á tveimur hæðum
6 herb.
430 m2
482.300.000
Stofur
0
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
6
Inngangur
Sér
Byggingaár
2015
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0

Croisette home kynnir í einkasölu!
Í hjarta Duque strandlengjunar stendur þessi einstaka 700 m2 6 svefnherbergja lúxusvilla sem státar af stórkostlegu sjávarútsýni. Húsið er á þremur hæðum og er fullbúin vönduðum sérinnfluttum húsgögnum.
 Nútímalegt og fullbúið hálfopið eldhús er með innbyggðum tækjum af bestu gerð. Rúmgóð borðstofa og stofa með stórum gluggum.
Gengið er út um aðalrými í garð með upphitaðri sundlaug með einstöku sjávarútsýni.
Tvö svefnherbergi er að finna á aðalhæð með innbyggðum fataskápum, og verönd vel búnum baðherbergjum með sturtuklefa og baðkari. Hjónaherbergið á efstu hæð er með en-suite baðherbergi með tvöfaldri sturtu og tvöföldum vaski, stórri verönd með grillsvæði.
Að auki er vel útbúin skrifstofa.
Jarðhæðin býður upp á þvottarhús, stóra stofu og leikherbergi með biljarðborði, tvö rúmgóð svefnherbergi með en-suite baðherbergi, vönduðum húsgögnum og innbyggðum fataskápum.
Lyfta er í húsinu.
Loftkæling er í öllum herbergjum og á jarðhæð er grillsvæði og stórt bílastæði.
 Eignin er sem fyrr segir staðsett í miðbæ Duque strandlengjunar. Nánar tiltekið fyrir framan Plaza Del Duque verslunarmiðstöðina.
2 mínútu ganga er á Duque ströndina svo eignin hentar því einstaklega vel sem útleigufjárfesting.


Nánari upplýsingar veita: 
Giorgio Giubilei í S: +34 642545867 eða [email protected]
Drifa Björk Linnet Kristjansdottir í S: 771-8585 eða [email protected]
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða [email protected]  


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Annar kostnaður sem leggst ofan á kaupin eru 6,5 % IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði. Um 3500 Evrur í kostnað vegna stimpilgjalda og annars frágangskostnaðar,
 
Við hjá Croisette Ísland bjóðum uppá þjónustu Íslenskumælandi sölustjóra hjá okkur sem staðsettir eru á Tenerife og fylgja þér í gegnum kaupin í heild.
 
 
·        Aðstoð við húsnæðislán í Spænskum banka
·        Lögfræðiaðstoð
·        Aðstoð við að fá spænska kennitölu
·        Aðstoð við að fá verktaka í breytingar á húsnæði ef þess er þörf
·        Útvega endurskoðanda
·        Aðstoð við að opna spænskan bankareikning

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.