Apartment conde , 956 Tenerife
59.700.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
125 m2
59.700.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2005
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0

Croisette Home kynnir í einkasölu!
Smekkleg nýuppgerð íbúð í Roque del Conde á suðurhluta Tenerife með víðáttumiklu útsýni yfir hafið.  
Eignin telur 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Opið eldhús, björt stofa og borðstofa en þaðan er hægt að ganga út á góða verönd með ótrúlegu útsýni yfir fjöllin, sjóinn og ströndina.
Svefnherbergin tvö eru rúmgóð og með innbyggðum fataskápum. Innifalið í söluverði er bílskúrsrými. Íbúðin er mjög miðsvæðis á suðurhlutanum- í rólegu hverfi, með sundlaugum og fallegum görðum. Það er aðeins 5 mínútur frá "Siam Park" og "Siam Mall" verslunarmiðstöðinni, 3 mínútur frá "X-Sur" verslunarmiðstöðinni og með greiðan aðgang að allri þjónustu.
Flugvöllur í 15 mínútna fjarlægð.
Njóttu hins fullkomna loftslags á Tenerife með 365 sólskinsdögum á ári. Fullkomin orlofseign fyrir fjölskylduna þína eða sem fjárfesting. VV (orlofsleiguleyfi)
Ekki missa af þessu tækifæri!


Nánari upplýsingar veita: 
Giorgio Giubilei í S: +34 642545867 eða [email protected]
Drifa Björk Linnet Kristjansdottir í S: 771-8585 eða [email protected]
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða [email protected]  


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Annar kostnaður sem leggst ofan á kaupin eru 6,5 % IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði. Um 3500 Evrur í kostnað vegna stimpilgjalda og annars frágangskostnaðar,
 
Við hjá Croisette Ísland bjóðum uppá þjónustu Íslenskumælandi sölustjóra hjá okkur sem staðsettir eru á Tenerife og fylgja þér í gegnum kaupin í heild.
 
 
·        Aðstoð við húsnæðislán í Spænskum banka
·        Lögfræðiaðstoð
·        Aðstoð við að fá spænska kennitölu
·        Aðstoð við að fá verktaka í breytingar á húsnæði ef þess er þörf
·        Útvega endurskoðanda
·        Aðstoð við að opna spænskan bankareikning

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.