CROISETTE HOME og Karl Lúðvíksson Löggiltur Fasteignasali kynna í einkasölu fallega 89,5 fm íbúð á jarðhæð ásamt 12,3 fm geymslu við Vinastræti 6 í Garðabæ. Eigninni fylgir sérstæði í bílageymslu. Í íbúðinni er gott hjónaherbergi með fataherbergi, barnaherbergi með fataskáp, baðherbergi og þvotthús. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými, þaðan er gengið út á afgirtan pall. Allar nánari upplýsingar um eignina gefur Karl Lúðvíksson Löggiltur Fasteignasali í síma 663-6700 eða á [email protected]Nánari lýsing:Anddyri: Snyrtilegt anddyri með stórum fataskáp og gengið er inn í þvottahús til hægri við anddyri. Harðparket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð, opin og björt stofa með harðparketi á gólfi og úr stofu er gengið út á vestur sólpall.
Eldhús: Stórt opið eldhús með góðu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Gott herbergi með rúmgóðu fataherbergi. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi: Gott barnaherbergi með harðparket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Falleg innrétting, upphengt salerni, sturta, handklæðaofn. Flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Þvottahús: Lítið en snyrtilegt og vel skipulagt þvottahús með innréttingu.
Í sameign er góð geymsla og einnig sérbílastæði í bílageymslu.