Vindakór 5-7, 203 Kópavogur
87.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
128 m2
87.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2007
Brunabótamat
63.710.000
Fasteignamat
82.150.000

CROISETTE - KNIGHT FRANK kynnir í einkasölu fallega fjögurra herbergja íbúð við Vindakór 5-7 í Kórahverfinu í Kópavogi. Þetta er falleg, björt og snyrtileg íbúð þar sem stutt er í þjónustu, skóla, íþrótta og tómstundastarf.  Allar nánari upplýsingar veitir Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða [email protected] og Eva Margrét aðstoðarmaður fasteignasala í S: 822-8196 eða [email protected]

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott með góðum skápum og setubekkjum með geymsluhólfum. Fjórfaldur skóskápur á vegg. Flísar á gólfi.
Stofa: Opin og björt stofa þaðan sem útgengt er á stórar suðursvalir. Eldhús og stofa mynda saman eitt stórt rými. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Opin og björt hvít sprautulökkuð innrétting með góðu skápaplássi, útdraganlegum stórum skúffum á neðri hluta innréttinga. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Gott herbergi með stórum fataskáp. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 1: Gott herbergi með góðum skáp. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 2: Gott herbergi með góðum skáp. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Gott baðherbergi með baðkari og sturtuklefa. Upphengt salerni, ágæt innrétting. Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús: Gott þvottahús með innréttingu er inní íbúðinni.

Eigninni fylgir 14 fm geymsla í sameign en þar er líka hjóla/vagnageymsla.

Nánari upplýsingar veita: 

Eva Margrét Ásmundsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala, [email protected], S: 822-8196
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða [email protected] 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.