Tryggvagata 4-6, 101 Reykjavík (Miðbær)
Tilboð
Fjölbýli
4 herb.
125 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1942
Brunabótamat
52.150.000
Fasteignamat
74.900.000

CROISETTE.HOME Kynnir í einkasölu 125 fm stórglæsilega íbúð í fjölbýli með sérinngang í miðbæ Reykjavíkur. Björt íbúð með mikilli lofthæð og háum gluggum í stofu með einstaklega fallegu útsýni yfir Reykjavíkurhöfn og Esjuna. Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi, þvottarými er inni í íbúðinni. Þessi eign er fullkomin fyrir þá sem vilja vera í nálægð við menningu, veitingastaði, verslun og þjónunstu. Allar nánari upplýsingar veita Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða [email protected] og Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða [email protected] 

Nánari lýsing á neðri hæð:
Anddyri: Sér inngangur er inn í íbúðina. Innfelldur fataskápur. Steinflísar á gólfi.
Þvottarými: Snyrtilegt herbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gestasnyrting: Er í anddyri. Salerni, vaskur og stór skápur. Dúkur á gólfi. 
Eldhús: Opið eldhús við gang og stofu. Innréttingar eru hannaðar og byggðar af Daníeli Magnússyni.  Uppþvottavél er innfelld í innréttingu. Eldhúseyjan er frá IKEA og getur fylgt með. Skúffueining við hliðiná Ísskáp fylgir ekki með. Steinflísar á gólfi.
Stofa: Stór, björt og opin stofa með mikilli lofthæð. Stórir gluggar með einstaklega fallegu útsýni yfir Reykjavíkurhöfn og Esjuna. Ljósakrónan í loftinu er innbyggt handsmíðað listaverk. Harðparket á gólfi. 

Nánari lýsing á efri hæð:
Gangur/vinnurými:
Ágætt rými með útsýni yfir stofu. Sandblásinn 1,8 cm þykkur glerveggur með ísbjarnarteikningu. Timbur á gólfi.
Hjónaherbergi: Bjart og fallegt hjónaherbergi. Timbur á gólfi.
Herbergi: Barnaherbergi notað sem vinnu-og gestaherbergi. Timbur á gólfi.
Baðherbergi:  Flísar á gólfi og veggjum. Handklæðaofn og sturta.

Nánari upplýsingar veita: 
Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða [email protected]
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða [email protected] 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.