Chalet golf caleta , 956 Tenerife
186.000.000 Kr.
Parhús
4 herb.
192 m2
186.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0

Croisette Home Tenerife kynnir! Það er sannur heiður að kynna þessa glæsilegu eign sem staðsett er á hinu virta svæði Golf de Adeje, sannur gimsteinn fyrir golfarann! Húsið, sem er nýlega uppgert með hágæða efnum og framúrskarandi smekkvísi, býður upp á töfrandi útsýni yfir golfvellina og hafið.
Þegar inn er komið tekur á móti þér rúmgóð og björt stofa með stórum glugga sem opnast út á fallegt skjólsælt svæði, búið smekklegum útihúsgögnum, þar sem hægt er að njóta algjörar slökunar við hliðina á einka sundlaug, með beinu útsýni yfir golfvöllinn. Nútímalegt eldhús búið öllum þægindum og gott svefnherbergi og gestabaðherbergi á aðalhæð.
Á efri hæð, er að finna tvö herbergi til viðbótar. Hjónasvítan, með sérbaðherbergi, opnast út á rúmgóða verönd þaðan sem hægt er að njóta dásamlegs útsýnis yfir hafið og golfvellina. Annað herbergið, sem snýr að hinni hlið hússins, hefur einnig sérsvalir.
Þessi einstaklega spennandi fjárfesting er staðsett í hjarta Costa Adeje Golf, og mætti teljast einstakt tækifæri til að búa á þessu eftirsótta svæði. Aðeins nokkrar mínútur frá "La Caleta"  og sjónum svo þetta er hið fullkomna jafnvægi milli lúxus, þæginda og náttúru.
Örugg og arðbær fjárfesting og hentar vel þeim sem vilja ekki vera ofan í öllum túristafjöldanum.

 
Nánari upplýsingar veita: 
Giorgio Giubilei í S: +34 642545867 eða [email protected]
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða [email protected]  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Annar kostnaður sem leggst ofan á kaupin eru 6,5 % IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði. Um 3500 Evrur í kostnað vegna stimpilgjalda og annars frágangskostnaðar,
Við hjá Croisette Ísland bjóðum uppá þjónustu Íslenskumælandi sölustjóra hjá okkur sem staðsettir eru á Tenerife og fylgja þér í gegnum kaupin í heild.
  
·        Aðstoð við húsnæðislán í Spænskum banka
·        Lögfræðiaðstoð
·        Aðstoð við að fá spænska kennitölu
·        Aðstoð við að fá verktaka í breytingar á húsnæði ef þess er þörf
·        Útvega endurskoðanda
·        Aðstoð við að opna spænskan bankareikning

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.