Villa fañabé , 956 Tenerife
208.450.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
4 herb.
200 m2
208.450.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0

Croisette Home kynnir! EINSTÖK STAÐSETNING VILLA Í FYRSTU LÍNU VIÐ FANABE STRÖNDINA!
Einstaklega nútímaleg hönnunarvilla til sölu á frábærum stað í fyrstu línu Fañabé strandarinnar, í hinni vinsælu Lagos de Fañabé samstæðu.
Þetta einstaka einbýlishús hefur verið algjörlega endurnýjað með gæðaefnum og nýjustu tækni og unnið af hönnuðum og arkitektum.
Húsið er á 2 hæðum, á fyrstu hæð er rúmgóð stofa með stórum gluggum og útgengi á stóra verönd, þar sem einnig er beint útgengi á strönd og fallegt sjávarútsýni. Einnig er að finna á hæðinni fullbúið eldhús með mörgum stórum gluggum með útsýni yfir sundlaugina. Í eldhúsinu er vínkælir, ofn, uppþvottavél og ísskápur allt innbyggt og allt sem þarf til að halda gott matarboð. Á þessari hæð er einnig gott svefnherbergi með innbyggðum skáp og nútímalegum innréttingum og gott baðherbergi með sturtu.
Að annarri hæð er komið upp um upplýstan nútímalegan stiga og þar er að finna 2 stór svefnherbergi til viðbótar. Hjónaherbergið er með stórum gluggum frá gólfi til lofts, stórum innbyggðum skáp og sér baðherbergi með rúmgóðri sturtu og verönd þar sem þú getur notið sólsetursins og stórbrotnu sjávarútsýni. Hitt svefnherbergið er líka mjög rúmgott og bjart, með innbyggðum skáp og stórum háum gluggum og útgengi út á stóra verönd með útsýni yfir sundlaugina. Þetta svefnherbergi er með sér baðherbergi, baðherbergið er með sturtu og innbyggðri þvottavél.
Húsið er fullbúið með góðri loftkælingu.
Hægt er að leigja bílastæði gegn gjaldi.
Húsið hefur 2 innganga, annarsvegar frá sundlaugarsvæði og hinsvegar frá göngugötunni við ströndina.
Þetta er mjög vel þekkt samstæða með veitingastöðum og börum, nokkrum sundlaugum, mjög vel viðhaldið með pálmatrjám og suðrænum plöntum.
Það eru margir veitingastaðir, barir, verslanir og verslunarmiðstöðvar í nágrenninu.
Algörlega einstakt tækifæri að upplifa Tenerife drauminn alla leið!
Virkilega góð fjárfesting og frábær staðsetning!


Nánari upplýsingar veita: 
Giorgio Giubilei í S: +34 642545867 eða [email protected]
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða [email protected]  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Annar kostnaður sem leggst ofan á kaupin eru 6,5 % IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði. Um 3500 Evrur í kostnað vegna stimpilgjalda og annars frágangskostnaðar,
Við hjá Croisette Ísland bjóðum uppá þjónustu Íslenskumælandi sölustjóra hjá okkur sem staðsettir eru á Tenerife og fylgja þér í gegnum kaupin í heild.
  
·        Aðstoð við húsnæðislán í Spænskum banka
·        Lögfræðiaðstoð
·        Aðstoð við að fá spænska kennitölu
·        Aðstoð við að fá verktaka í breytingar á húsnæði ef þess er þörf
·        Útvega endurskoðanda
·        Aðstoð við að opna spænskan bankareikning
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.