Croisette Real Estate Partner kynnir:Til leigu 393,3 m² veitinga- og skrifstofuhúsnæði í miðbæ Reykjavíkur, við Amtmannsstíg 1, Um er að ræða 256,1fm veitingarhús á tveimur hæðum með tilbúnu eldhúsi og 62,2fm geymsla með frysti (walk-in). Auk þess er 75fm skrifstofuhúsnæði á 2. og 3. hæð í turni með frábæru útsýni. Önnur hæðin skiptist í tvær skrifstofur en á þriðju hæðinni er glæsileg skrifstofa auk forrýmis undir súð + lítið salerni. Tvö sérmerkt einkabílastæði fylgja að aftanverðu. Sér inngangur er í bæði rýmin að aftanverðu þannig að hægt er að leigja frá sér skrifstofueininguna frá sér.
VSK leggst við leigufjárhæð.
Laust strax.Nánari upplýsingar veittar í síma 569 9090 og [email protected]
Davíð Ólafsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, [email protected] S: 766-6633
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í húsaleigulögum nr. 36/1994 er kveðið á um heimild aðila kalla til skoðunaraðila til úttektar á húsnæðinu fyrir afhendingu. Croisette real estare partner bendir væntanlegum leigjendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Í tilfelli atvinnuhúsnæðis er ríkari heimild aðila að semja sig frá lögum og gildir þá ákvæði leigusamnings ef til ágreinnings kemur.