Croisette Real Estate Partner kynnir TIL LEIGU - Suðurlandsbraut 22 .Á þriðju hæð byggingar er laust til leigu annars vegar 240 fm skrifstofuhúsnæði og hins vegar 156 fm skrifstofuhúsnæði á þessum vinsæla stað við Laugardalinn, merkt nr. 03-01 og 03-04 á grunnmynd. Útsýni til norðurs úr báðum skrifstofurýmum. Þá er laus ein skrifstofa í skrifstofukjarna félagsins á annarri hæð, hún er 37 fm og er nr. 8 á grunnmynd og snýr í suður. Skrifstofan er með hlutdeild í fundarherbergi og kaffistofu á sömu hæð.
Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Ólafsson Sölustjóri - atvinnueignir, í síma 766-6633, tölvupóstur [email protected].
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í húsaleigulögum nr. 36/1994 er kveðið á um heimild aðila kalla til skoðunaraðila til úttektar á húsnæðinu fyrir afhendingu. Croisette real estare partner bendir væntanlegum leigjendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Í tilfelli atvinnuhúsnæðis er ríkari heimild aðila að semja sig frá lögum og gildir þá ákvæði leigusamnings ef til ágreinnings kemur.