CROISETTE kynnir í einkasölu huggulega tveggja herbergja íbúð á annarri hæð við Hofsvallagötu 17 í Reykjavík. Íbúðin er skráð samtals 65,3 m2 og skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðinni fylgir stór geymsla/herbergi í kjallara sem skráð er 16,4 m2. Góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.isSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLITNánari lýsing:Hol: Frá stigagangi er komið inn í hol sem tengir saman rými íbúðarinnar. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Gott eldhús með innréttingu, ofn, helluborð og vaskur. Gert ráð fyrir ísskáp við hlið innréttingar. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Gott herbergi með fataskáp, harðparket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð stofa með harðparketi á gólfi.
Baðhebergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu, hvítri innréttingu með vaski og upphengdu salerni. Opnanlegur gluggi.
Geymsla/herbergi: Í kjallara í sameign er 16,4 m
2 geymsla með opnanlegum glugga.
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla og sameiginlegt þvottahús ásamt þurrkherbergi.
Nánari upplýsingar veita: Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is
Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.