Croisette Iceland logo
Skráð 23. sept. 2026
Söluyfirlit

Haukanes 14

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
678.7 m2
10 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
416.100.000 kr.
Brunabótamat
208.700.000 kr.
Mynd af Karl Lúðvíksson
Karl Lúðvíksson
Sölustjóri - Íbúðareignir
Byggt 1966
Þvottahús
Garður
Margir inngangar
Fasteignanúmer
2070345
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endunýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Þarfnast yfirferðar
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
CROISETTE kynnir í einkasölu afar glæsilegt einbýli á eignarlóð sem er sjávarlóð við Haukanes 14 á Arnarnesinu í Garðabæ. Húsið er skráð samtals 678 fm og er einstaklega vel skipulagt með góðri aukaíbúð á jarðhæð.  Herbergin í aðaleigninni eru sex og öll rými eins og stofur, hol, glæsilegt eldhús, tómstundarými stór og rúmgóð.  Umhverfis húsið er stór garður, hellurlagður suður sólpallur, hellulagt skjólsælt rými við vesturgarðinn og tvöfaldur bílskúr.  Eignin er í alla staði glæsileg, útsýnið úr stofu og herbergjum sem snýua til norðurs er yfir Fossvoginn án hindrana. Heilsulindin í kjallaranum er með saunu, heitum potti, setustofu og góðu plássi fyrir líkamsræktartæki.  Þetta er eign fyrir vandláta sem vilja stóra og rúmgóða eign fyrir fjölskylduna. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT.


Nánari lýsing á aðalhæð:
Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með granít flísum og góðu skápaplássi. Þaðan er gengið inn í stórt hol sem tengir saman rými hússins.
Hol: Rúmgott og fallegt hol með granít flísum, aukinni lofthæð og gólfsíðum stórum glugga með fallegu útsýni út á sjó. 
Stofa: Frá holi er gengið inn í afar rúmgóða og fallega stofu með gólfsíðum gluggum, fallegu útsýni til sjávar og út í fallegan gróinn garð. Glæsilegur stór granít arninn er í stofu. Gólfhiti er í stofugólfi sem er lagt með fallegum flísum með fiskibeinamynstri.
Borðstofa: Falleg og rúmgóð borðstofa tengir saman stofu og eldhús. Frá borðstofu er gengið út á rúmgóða verönd úr mahogany með glerhandriði og markísu. Einstakt útiborðstofusvæði sem tengir borðstofu fram fyrir húsið og út í garð. Notalegt svæði til að njóta sólsetursins.
Eldhús: Stórt, bjart og glæsilegt hönnunareldhús er við hliðina á borðstofunni með veglegum innréttingum frá Clive Christian í London. Eldhúsið er búið hágæða tækjum frá Miele, þreföldum Zub-Zero ísskáp með vínkæli og franskri Lacanche eldavél. Gengið er út úr eldhúsi út á stóra verönd sem tengir allt húsið við garðinn.
Svefnherbergi: Gott herbergi sem er inn af holi.
Geymsla: Lítil geymsla með útgangi út á hellulagðan austurpall.
Gestasnyrting: Falleg gestasnyrting með handlaug og salerni.

Einnig er gengið úr holi út um bakinngang þar eru inni og úti geymslur undir þaki. Þar er einnig gengið inn í mjög rúmgóðan tvöfaldan flísalagðan bílskúr með miklu skápaplássi og tveimur rafdrifnum bílskúrshurðum úr gegnheilu mahogany. Fallegur hringlaga stigi tengir hæðir hússins sem er byggt á pöllum. Hiti í öllu bílaplaninu fyrir utan.

Efsta hæð:
Frá holi er gengið upp á efstu hæð hússins. Þar er mjög fallegt og rúmgott baðherbergi með Versage flísum, tveimur handlaugum, frístandandi baðkari og stórri sturtu.
Rúmgóð hjónasvíta með stóru fataherbergi og sjávarútsýni, annað minna herbergi og rúmgóð skrifstofa með mögnuðu sjávarútsýni út á voginn og út að Snæfellsjökli. Þaðan er gengið út á svalir sem teygja sig meðfram húsinu sjávarmegin. Frá Holi er einnig gengið niður á neðri hæðir. Á neðri svefnherbergisálmu er að finna þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og gott þvottahús með innréttingum. Á þessari hæð er einnig útgangur út í garð sjávarmegin. Þaðan er líka gengið niður stigann á neðstu hæð hússins.

Neðsta hæð:
Á neðstu hæð hússins er stór sjónvarpssalur og tómstundaherbergi, fullbúin líkamsrækt og tvær góðar geymslur. Á sömu hæð er einnig einstaklega glæsilegt og rúmgott SPA með stórri saunu, heitum rafmagns nuddpotti, baraðstöðu með ísskáp, snyrtingu, afslöppunar rýmum og sólskála. Úr sólskála er gengið út á fallega verönd með Patio og út í garð.

Aukaíbúð
Nýuppgerð fullbúin íbúð með sérinngangi og gólfhita er í kjallara hússins. Íbúðin er um 70 fm og er óskráð.

Aðkoma
Aðkoman að húsinu er glæsileg og skartar veglegum gegnheilum mahogany hurðum við inngang og bílskúr. Fallegar steini lagðar verandir, göngustígar, stigar og rúmgóð fimm bílastæði.

Lóðin
Lóðin er einstaklega falleg og er 1433 fm fullbúin með hlöðnum pöllum, tröppum og veggjum. Patio, fiskatjörn og áhaldahús er í bakgarðinum. Garðurinn er einstaklega skjólgóður og er gróinn með fallegum trjám, runnum, gullregni, berjarunnum, blómum, plöntum. Garðurinn snýr út að sjó sem er einstök náttúrufegurð. Fjaran er friðuð og þar ríkir einstakt náttúru- og fuglalíf sem er áberandi hluti af heimilinu.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s: 663-6700 eða kalli@croisette.is 
Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

 
Byggt 1966
54.3 m2
Fasteignanúmer
2070345
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
16.200.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Croisette Iceland logo
Croisette Iceland ehf.
kt. 441120-0790
Hafðu samband
allir@croisette.isS: 569 9090
Kirkjuteigur 21
kt. 4411200790
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Croisette Iceland
Knúið af
Fasteignaleitin