CROISETTE kynnir í einkasölu eignina Laugarásvegur 35, 104 Reykjavík.
Afhending við kaupsamning.
Frábær fullbúin útleigueining í kjallara með sérinngangi. Stór tvöfaldur bílskúr og nóg af bílastæðum.
Eitt af veglegustu húsum Reykjavíkur á þessum fallega útsýnisstað í Laugardalnum.
Stutt í frábæra skóla og flesta þjónustu.
Eignin er tæpir
500m2 með stórar og veglegar stofur.
4-6 svefnherbergi eftir hvernig menn vilja skipuleggja húsið eftir þörfum.
Einnig hægt að stækka kjallaraíbúðina mikið þar sem það er óráðstafað rými undir húsinu sem hægt er að opna inní garð að framanverðu.
Þar er hægt að setja upp auðveldlega 1-2 herbergi ef út í það er farið.
Húsið hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum tíðina.
Húsið stendur á 1047m2 lóð með stórkostlegu útsýni.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT STRAXNánar um eignina:Mjög veglegt og einstaklega vel staðsett einbýlishús á þremur hæðum. Hús sem á sér fáar hliðstæður hérlendis.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og er í góðu ásigkomulagi.
Útisvæði í kringum húsið er mikið. Stórir pallar og svalir. Þar á meðal eru stórar og rúmgóðar svalir með markísu sem snúa í suð-vestur sem opnast út frá borðstofu.
Hellulagður garður bakvið sem er mjög skjólríkur. Á efstu hæð hússins eru stórar svalir með miklu útsýni yfir Reykjavík, Bláfjöll, Kollafjörð og Snæfellsnes.
Margir inngangar eru að húsinu og er kjallarinn með sérinngangi þar sem er séríbúð í kjallara með möguleika á stækkun út í garð.
Stórar stofur og mörg herbergi sem er hægt að nýta á margan hátt.
Stór baðherbergi á öllum hæðum og gestasalerni á aðal hæð.
Arinn með gasi í stofunni.
Hjónasvítan er á allri efstu hæðinni með aðgengi út á stórar útsýnissvalir. Stórt baðherbergi með sturtu og nuddbaðkari. Fataherbergi á hæðinni.
Eignin er umtalsvert stærri en opinberara tölur segja til um eða um 500m2 í heildina.Skipting á milli hæða:
Kjallaraíbúð með sérinngangi: 60 fm
Aðalhæð: 270 fm
Efsta hæð: 105 fm
Bílskúr tæpir 60 fm
Samtals ca: 495m2Nánari upplýsingar veita: Styrmir Bjartur Karlsson, framkvæmdastjóri og lfs. í síma 899 9090, tölvupóstur styrmir@croisette.is
Karl Lúðvíksson, sölustjóri og lfs, í síma 663 6700, tölvupóstur kalli@croisette.is