Croisette Iceland logo
Skráð 16. apríl 2026
Söluyfirlit

Stóriteigur 24

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
261.4 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
496.940 kr./m2
Fasteignamat
126.200.000 kr.
Brunabótamat
118.200.000 kr.
Mynd af Karl Lúðvíksson
Karl Lúðvíksson
Sölustjóri - Íbúðareignir
Byggt 1973
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2084384
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
CROISETTE kynnir í einkasölu stórt og vel skipulagt 261 fm raðhús á þremur hæðum við Stórateig 24 í Mosfellsbæ.  Eignin er mjög vel staðsett í rólegri götu stutt frá skóla, leikskóla, verslun og miðbæjarkjarna Mosfellsbæjar.  Húsið er í góðu ástandi og hefur fengið gott viðhald síðustu ár.  Mosfellsbær hefur komið einstaklega vel út í íbúakönnunum og eru fá bæjarfélög sem státa af jafn góðri þjónustu við sína íbúa. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EFRI HÆÐ OG AÐALHÆÐ Í 3-D
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA KJALLARA Í 3-D


Nánari lýsing aðalhæð:
Forstofa: Flísar á gólfi, þrefaldur lofthár skápur.
Eldhús: Stórt, opið og bjart eldhús með góðu skápaplássi, fallegri ljósgrárri innréttingu og útdraganlegum skúffum.  Tvöfaldur Whirlpool ofn, innbyggð uppþvottavél, pláss fyrir stórann ísskáp.  Stór eyja með harðviðarplötu, setuplássi öðru megin og stórum útdraganlegum skúffum hinum megin.  Flísar á gólfi.
Stofa: Opin og björt stofa með flísum á gólfi, útgengt út í skjólsælan suðurgarð með sólpalli og heitum potti.
Gestasalerni: Gestasalerni með rennihurð, gengið inn úr forstofu. Flísar á gólfi.

Nánari lýsing efri hæð:
Hjónaherbergi: Gott herbergi með mjög góðu stóru skápaplássi, útgengt út á svalir.  Parket á gólfi.
Barnaherbergi I: Gott herbergi með lausum skáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi II: Gott herbergi, parket á gólfi
Skrifstofa: Ágætt rými sem er nýtt sem skrifstofa, parket á gólfi.
Baðherbergi: Stórt og vel skipulagt baðherbergi með hornbaðkari, sturtuklefa, upphengdu salerni, handklæðaofn, gott skápapláss í snyrtilegri innréttingu, tvær vaskar, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Gott þvottahús með innréttingu, vaski, góðum skápum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.  Flotað gólf.
Bílskúr: Góður bílskúr samtals 21,8 fm.

Nánari lýsing kjallari:
Stórt rými undir öllu húsinu með löglegri lofthæð.  Skiptist upp í stofu, stórt herbergi, fataherbergi, stórt opið leik- eða tómstundarými og stóra geymslu.  Möguleiki er að breyta kjallara í séríbúð en það hefur þegar verið gert í eignum í þessari raðhúsalengju.  Mögulegt að bæta við baðherbergi í kjallara.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is 
Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Croisette Iceland logo
Croisette Iceland ehf.
kt. 441120-0790
Hafðu samband
allir@croisette.isS: 569 9090
Kirkjuteigur 21
kt. 4411200790
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Croisette Iceland
Knúið af
Fasteignaleitin