Croisette Iceland logo
Skráð 9. nóv. 2026
Söluyfirlit

Sámsstaðir 1

SumarhúsSuðurland/Hvolsvöllur-861
251.6 m2
2 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
119.350.000 kr.
Mynd af Karl Lúðvíksson
Karl Lúðvíksson
Sölustjóri - Íbúðareignir
Byggt 2018
Þvottahús
Garður
Útsýni
Margir inngangar
Fasteignanúmer
2341864
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Sólpallur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
8 - Í notkun
CROISETTE - KNIGHT FRANK kynna í einkasölu glæsilegt 210 fm sumarhús í Fljótshlíð við Sámstaði. Þetta er einstök eign á 6,8 hektara eignalóð með einstöku útsýni frá húsinu.  Þar er óhindrað útsýni til Vestmannaeyja, Eyjafjallajökuls, Þríhyrnings og Tindfjalla. suðurs, Fljótshlíð til norðurs og Þórsmörk til austurs.  Eignin er mjög vönduð með marmara í baðherbergjum, sérsmíðuðum innréttingum, baðtæki frá Vola, steinn í borðplötum í eldhúsi og baðherbergjum, mótorknúnar gardínur í öllum rýmum og hefur hvergi verið til sparað við byggingu hússins bæði í frágangi og gæðum. Góð aukin lofthæð í öllum rýmum og sérstaklega alrýminu. Tvær verandir eru við húsið og er skýli á aðra veröndina þar sem gert er ráð fyrir útieldhúsi. Húsið er staðsett í miðju sögusvæði Njálu og ber húsið nafn sitt af því.  Það hafa m.a. fundist fornminjar á jörðinni þar sem húsið er staðsett.  Allar nánari upplýsingar gefur Karl Lúðvíksson í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT.

Nánari lýsing:
Forstofa:  Björt og opin forstofa með góðum skápum, steinflísar á gólfi.
Stofa: Stór, rúmgóð og björt stofa með glæsilegu útsýni. Skiptist upp í góða borðstofu og stóra stofu með arni. Útgengt út á stóran sólpall sem er að hluta yfirbyggður.  Gestasalerni inn af stofu.
Eldhús: Sérhannaðar innréttingar í eldhúsi, mjög gott skápapláss, steinplata í borði, 6 metra lofthæð.
Hjónasvíta: Rúm og björt með gluggum til austurs og suðurs, gólfsíðum gardínum, fallegum viðarpanil á hluta veggja, stórt fataherbergi með góðu skápaplássi, stór flísalögð sturta með útgengi beint út á sólpall með stórum heitum pott, stórt baðherbergi með tveimur vöskum, upphengdu salerni, marmari á veggjum, steinflísar á gólfi.
Sjónvarpsherbergi: Gott herbergi með fallegum viðarpanil og parket á gólfi.  
Svefnherbergi I: Stórt og bjart herbergi með gólfsíðum gluggum, úttgengt út á stóran sólpall. Í herberginu er baðherbergi með sturtu og upphengdu salerni.  Steinflísar veggjum og á gólfi.
Svefnherbergi II: Stórt og bjart herbergi með gólfsíðum gluggum, úttgengt út á stóran sólpall. Í herberginu er baðherbergi með sturtu og upphengdu salerni. Steinflísar veggjum og á gólfi.
Þvottahús: Rúmgott með góðu skápaplássi, innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur.
Geymsla:  Góðgeymsla milli svefnherbergisgangs og bílskúrs. 
Bílskúr: Gengið inn í bilskúr frá svefnherbergisgangi. Góður bílskúr með möguleika á stóru geymslu lofti. 

Annað um eignina:
- Húsið er 210 fm. óvenju vel einangrað með 20 cm þykkum veggjum og þreföldu sólartefjandi gleri. 
- Á lóðinni er annað minna hús sem verður fjarlægt af seljanda.
- Baðtæki eru gyllt frá Vola (Tengi) og handsmíðuð í hjónaherberginu en klósett eru m.a. framleidd af IFÖ (Philipp Stark) og fleiri baðtæki frá Mora.
- Gluggar eru þrefaldir frá Primo í Danmörku, suður og austur hlið eru með sólartefjandi gleri. Þetta eykur einangrunargildi ennþá meira og temprar sól og hita á sumrin.
- Loft eru klædd að innan með norskum hljóðdepandi Troldtek plötum. Mikil lofthæð er í húsinu.
- Vandaðar ítalskar flísar eru í húsinu og gegnheilt parket á svefnherbergjum og í sjónvarpssherbergi.
- Gólfhitakerfi er frá Flooré (Hringás) í húsinu og er sérstakt gólfhitakerfi sem virkar mun hraðar heldur en ef rörin eru sett í steypuna. Varmadæla er í húsinu eða svo kallað  vatn í vatn kerfi sem notar aðeins 15% af hitunarkostnaði ef eingöngu væri hitað með rafmagni en 500 metrar af leiðslum liggja um landið og því má segja að vatnið sé hitað með jarðvarma að hluta. Varmadælan er frá NIBE sem er í fremstu röð í framleiðslu á varmadælum.
- Loftskiptikerfi frá NIBE er í eldhúsi og stofu sem sparar orku og heldur alltaf hreinu lofti. Einnig er náttúruleg loftun í öllum herbergjum í húsinu.
- Mikið var lagt í raflagnir í húsinu og og er ljósastýringarkerfi frá Plejd í því öllu. Það er auðvelt að búa til mismunandi lýsingar blæbrigði.
- Heitur pottur er frá Arctic Spas sem er einn fremsti framleiðandi í heitum pottum. Potturinn er svo kallaður saltvatnspottur sem þarf mjög lítið viðhald og er einangraður.
- Hægt er að stjórna hita í húsinu og fylgjast með hitanum í appi. Einnig er hægt að fjarstýra gardínum, ljósum ásamt heitum potti með fjarstýringum og með  appi í símanum. Þá er einnig verið að setja upp myndavélakerfi sem einnig verður hægt að fylgjast með í símanum.

Nánari upplýsingar veita:
Karl Lúðvíksson Lfs S: 663-6700 eða kalli@croisette.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Byggt 2024
21 m2
Fasteignanúmer
2341864
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
8 - Í notkun
Byggt 2024
189.4 m2
Fasteignanúmer
2341864
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
8 - Í notkun
Croisette Iceland logo
Croisette Iceland ehf.
kt. 441120-0790
Hafðu samband
allir@croisette.isS: 569 9090
Kirkjuteigur 21
kt. 4411200790
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Croisette Iceland
Knúið af
Fasteignaleitin