Vesturberg 78, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
46.300.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
73 m2
46.300.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1973
Brunabótamat
32.250.000
Fasteignamat
48.150.000

CROISETTE - KNIGHT FRANK kynnir í einkasölu íbúð á 5. hæð með lyftu í fjölbýli við Vesturberg 78  í Breiðholtinu. Íbúðin er 73,2 fm og sér geymsla í kjallara fylgir. Úr stofu er gengið út á austursvalir með góðu útsýni. Í eigninni eru tvö svefnherbergi. Stutt í matvörubúð, skóla, leikskóla, líkamsrækt og sund. Allar nánari upplýsingar veita Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða [email protected] og Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða [email protected] 

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3D

 
Nánari lýsing: 
Anddyri: Gott anddyri með fatahengi sem opnast inn í gang íbúðarinnar. Parket á gólfi.
Eldhús: Opið eldhús með hvítri innrétting með ágætu skápaplássi. Parket á gólfi.
Stofa: Gott rými með góðum glugga með fallegu útsýni yfir borgina. Úr stofu er gegnið út á góðar austursvalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með stórum þreföldum skáp með retro rennihurðum. Parket á gólfi.
Barnaherbergi: Rúmgott herbergi með skáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Retro blá innrétting, baðkar og sturta. Flísar á gólfi og veggjum.
 
Sameiginlegt þvottahús og sameiginleg hjóla og vagnageymsala á hverri hæð. Sér geymsla í kjallara. 

Nánari upplýsingar veita: 

Karl Lúðvíksson Lfs-Sölustjóri - Íbúðareignir, í síma 663 6700, eða [email protected].
Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.