Tryggvagata 4-6, 101 Reykjavík (Miðbær)
98.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
112 m2
98.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1942
Brunabótamat
48.350.000
Fasteignamat
77.650.000

CROISETTE - KNIGHT FRANK kynna í einkasölu 112 fm íbúð í fjölbýli með sérinngang í miðbæ Reykjavíkur. Björt íbúð með mikilli lofthæð og háum gluggum í stofu með einstaklega fallegu útsýni yfir Reykjavíkurhöfn og Esjuna. Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi, þvottarými er inni í íbúðinni. Þessi eign er fullkomin fyrir þá sem vilja vera í nálægð við menningu, veitingastaði, verslun og þjónunstu. Allar nánari upplýsingar veita Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða [email protected] og Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða [email protected] 

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT
SMELLTU HÉR TIL AÐ SJÁ EIGNINA Í 3D

Nánari lýsing á neðri hæð:
Anddyri og gangur: Sér inngangur er inn í íbúðina. Fatahengi í anddyri. Flísar á gólfi.
Þvottarými og geymsla: Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hillur á veggjum. Dúkur á gólfi.
Gestasnyrting: Salerni, vaskur og sturta. Mósaík flísar á gólfi og hluta af veggjum. 
Eldhús og borðkrókur: Hvít innrétting með flísalagðri borðplötu. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt með. Flísar á gólfi.
Skot undir stiga: Krúttlegt lítið Harry Potter herbergi.
Stofa: Stór, björt og opin stofa með mikilli lofthæð. Stórir gluggar með einstaklega fallegu útsýni yfir Reykjavíkurhöfn og Esjuna. Hægt er að semja um að ljósakrónur í lofti fylgi með. Gegnheilt parket á gólfi. 

Nánari lýsing á efri hæð:
Gangur: Ágætt rými með útsýni yfir stofu. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Í báðum svefnherbergjum eru innbyggðir fataskápar. Harðparket á gólfi. 
Baðherbergi:  Salerni, vaskur, baðkar með sturtu og handklæðaofn á vegg. Dúkur á gólfi, flísar á veggjum og lofti.

Skv. eignaskiptayfirlýsingu fylgir réttur til að byggja 5,4 fm svalir út frá svefnherbergi á kostnað húsfélagsins.

Nánari upplýsingar veita: 
Þorbirna Mýrdal Aðstoðarmaður fasteignasala í S: 888-1644 eða [email protected]
Karl Lúðvíksson Lfs í S: 663-6700 eða [email protected] 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.