Norðurbrú 4, 210 Garðabær
94.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
107 m2
94.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2004
Brunabótamat
57.920.000
Fasteignamat
84.800.000
Opið hús: 09. júlí 2024 kl. 17:00 til 18:00.

Opið hús: Norðurbrú 4, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 01 09. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 9. júlí 2024 milli kl. 17:00 og kl. 18:00.

CROISETTE - KNIGHT FRANK kynna í einkasölu bjarta og vel skipulagða íbúð á 1. hæð (jarðhæð) við Norðurbrú 4 í Garðabæ. Íbúðin er 107 fm með geymslu, stæði í bílakjallara og stórum sólríkum svölum í vestur. Eignin skiptist upp í þrjú herbergi þar af tvö barnahebergi, rúmgóða stofu og opið eldhús. Þetta er virkilega falleg eign í einu vinsælasta hverfi Garðabæjar, stutt í alla helstu þjónust, Sjálandskóli, leikskólinn Ásar og Sjálandsleikskóli eru í göngufæri . Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson í S: 663-6700 eða [email protected] og Eva Margrét Ásmundardóttir í S: 822-8196 eða [email protected].

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3-D.


Nánari lýsing: 
Stofa: Opin og björt stofa með parket á gólfi og útgengt út á svalir/sólpall til vesturs.
Eldhús: Opið og vel skipulagt eldhús með góðu skápaplássi, útdraganlegar skápaskúffur, ofn í vinnuhæð, stór vaskur og innbyggð uppþvottavél. Eldhúsinnréttingu var skipt út 2019.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með stórum loftháum skápum. Parket á gólfi.
Barnaherbergi 1: Rúmgott herbergi með stórum föstum skáp. Parket á gólfi.
Barnaherbergi 2: Rúmgott herbergi með stórum föstum skáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Glæsilegt baðherbergi með baðkari, sturtu, upphengdu salerni og spegli með baklýsingu. Flísar á gólfi og veggjum. Skipt um sturtuklefa 2020 og baðinnréttinguna 2022.
Þvottahús: Vel nýtt plássí þvottahúsi, innrétting á báðum veggjum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson í S: 663-6700 eða [email protected]
Eva Margrét Ásmundardóttir í S: 822-8196 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.