CROISETTE kynnir í einkasölu einstakt sumarhús við bakka Brúarár í nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá Skálholti. Húsið er 147 fm og stendur á 1,5 hektara eignalóð og er algjörlega einstakt í hönnun og smíði. Húsið er átthyrnt og stendur í brekku fyrir ofan Brúará með fallegu útsýni um nágrennið, er klætt með lerki og bæði sólpallurinn við húsið og fyrir ofan ánna eru líka úr lerki. Tvö baðherbergi, tvö svefnherbergi, stór opin stofa og eldhús með glæsilegu útsýni og niðurgrafið gestarými með glerþaki er meðal þess sem er að finna á eigninni. Það er borhola á lóðinni og nóg af heitu vatni. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.isSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT.Nánari lýsing:Stofa: Stór og björt með mjög góðri lofthæð, einstaklega fallegri hönnun á lofti, niðurlímd svört fjörumöl á gólfi og stuðlaberg í þrepum, furuklæddir veggir. Í miðju þakinu er glerturn sem setur mikin svip á húsið og flæðir birtu á mjög fallegan hátt niður í stofurýmið.
Eldhús: Snyrtlegt og rúmgott eldhús, innrétting með góðu skápa plássi.
Svefnherbergi með baðherbergi: Gott svefnherbergi með baðherbergi, flísalagt, upphengt salerni, sturta.
Gestaherbergi: Fallegt semetrískt herbergi, furuklæddir veggir.
Baðherbergi: Lítið flísalagt gestasalerni með upphengdu salerni, flísalagt.
Gestarými úti: Flísar úr stuðlabergi, glerþak að hluta, timburfjalir að miðjum vegg. Er í dag hugleiðslurými en hægt að gera að gestaherbergi.
Umhverfis húsið er stór sólpallur, annar stór sólpallur er síðan aðeins frá húsinu fyrir ofan ánna og þar er gert ráð fyrir heitum potti og sturtu, á pallinum við húsið er heitur pottur í skemmtilegri upphækkaðri timburbyggingu, verkfærageymsla og möguleiki á að gera stóra setlaug með sírennsli af heitu vatni. Nánari upplýsingar veita: Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is
Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.